}

Fyrirlestur Wendy Brawer í Sesseljuhúsi

Staðsetning
Sólheimar
Hefst
Föstudagur 11. september 2015 13:00
Lýkur
Föstudagur 11. september 2015 14:00
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Guðrún Tryggvadóttir stofnandi Náttúran.is og Wendy Brawer stofnandi Green Map Sysem.Opnunarhátið Græna kortsins fyrir Suðurland í Listasafni Árnesinga og fyrirlestur í Sesseljuhúsi

Laugardaginn 12. september kl. 15:00 býður Náttúran.is til mótttöku og opinberrar gangsetningar Græns Korts IS - Suður, apps um menningu, hagkerfi og náttúru á Suðurlandi. Græna kortið er á 5 tungumálum.

Wendy BrawerNýja appið Grænt kort IS - Suður stofnandi Green Map System greenmap.org kemur til landsins að því tilefni og heldur fyrirlestur um grænkortagerð sem tæki til grænvæðingar heimsins.

Daginn áður, föstudaginn 11. september kl. 13:00 heldur Wendy Brawer fyrirlestur sinn í Sesseljuhúsi að Sólheimum. Wendy Brawer hefur unnið til fjölda verðlauna og er m.a. á lista UTNE um „50 visionaries changing your world“. 

Græn kort hafa nú verið þróuð í yfir 900 borgum, bæjum og samfélögum í 65 löndum. Náttúran.is hefur staðið að þróun Grænna korta hérlendis síðan árið 2008 en Grænt kort - Suður er fyrsta Grænkorta appið sem Náttúran.is þróar. Áður hefur Náttúran.is gefið Græn kort út í prent- og vefútgáfum natturan.is/gm og öppin HÚSIÐ og umhverfið og Endurvinnslukort.

Náttúran.is fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands til þróunar appsins en fyrirtækið hefur starfað á Suðurlandi frá stofnun árið 2006, fyrst á Selfossi, síðan í Ölfusi við Hveragerði og nú er það starfrækt í Alviðru, umhverfisfræðslusetri í Ölfusi.

Stofnandi, framkvæmdastjóri og hönnuður Náttúran.is er Guðrún Tryggvadóttir en tæknistjóri og forritari er Einar Bergmundur Arnbjörnsson. Dr. Anna Karlsdóttir mannvistarlandfræðingur og fv. lektor við HÍ, nú rannsóknarstjóri (Senior Research Fellow) hjá Nordregio hefur haft faglega aðkomu að þróun íslensku grænkortanna frá upphafi. Auk þess sem fjöldi sjálfboðaliða, þýðenda, nema og sérfræðinga hafa lagt hönd á plóg á hinum ýmsu stigum þróunarinnar enda byggist grænkortavinna fyrst og fremst á samvinnu.

Nánar um Wendy Brawer:

Wendy Brawer er hönnuður og frumkvöðull á bak við hið víðfræga greenmap. Hún er fædd 1953 í Detroit þar sem hún ólst upp. Í byrjun tíunda áratugarins flutti hún til New York þar sem hún hefur búið síðan. Wendy hefur síðan beitt sér fyrir fleiri öndunarholum, borgargarðyrkju, og sjálfbærni í þéttbýlinu á Lower East Side þar sem hún býr og starfar á Manhattan, New York.

Árið 1992 stofnaði hún hönnunarteymið Modern World Design. Fljótlega vatt starfsemin upp á sig og fyrsta græna kortið kom út en það bar nafnið Green Apple map og var beint að útivistarsvæðum í þéttbýlinu og ýmiskonar umhverfisgæðum borgarsamfélagsins auk þess sem starfsemi með metnað fyrir vistvænum starfsháttum var kortlögð.

Með græna kortinu var brotið blað þar eð hefðbundin skipulagskort höfðu áður ekki sýnt fram á grænar og vistvænar víddir umhverfisins og þannig hafði þessi tilraun í för með sér áhrif sem urðu víðtækari en upphaflega var búist við. Síðan hefur komið út grænt kort af New York með áherslu á moltugerð og lífrænan úrgang, með áherslu á orkumál (óvistvæn sem vistvæn), hjólakort og kort barnanna sem í samstarfi við samstarfsfólk Wendyar gerði grænt kort þar sem börn ákváðu hvað væri þess virði að kortleggja í eigin hverfi borgarinnar með hjálp grænkortatáknanna.

Grænkortagerð sem náði útyfir landsteina Bandaríkjanna þar sem hún hafði átt síauknum vinsældum að fagna tók stökk eftir að fulltrúar grænkortateyma frá 23 þjóðlöndum fengu styrk frá Rockefeller sjóðnum til að hittast á Norður Ítalíu, nánar tiltekið í Bellagio árið 2002. Þá var alþjóðlegt samstarf um non profit kortagerð formgert gegnum stofnun Green Map System sem festi í sessi hnattrænt táknakerfi sem samnefnara fyrir kortagerðina en þau ná yfir hagkerfi, samgöngur, menningu, plönturíki og dýraríki, vatnafar og umhverfisupplýsingar og geta því veitt víðtækar upplýsingar um sérkenni kortlagðra svæða þó að flestir sem kortleggja með þessum hætti velji ákveðnar áherslur á sínum kortum.

Frá því að Wendy lagði af stað í grænkortaleiðangurinn hefur mikið vatn runnið til sjávar. Nú hafa um 900 staðbundin verkefni orðið til í grænkortagerð í 65 þjóðlöndum í öllum heimsálfum, m.a. hér á landi en Náttúran.is unnið að þróun og útgáfu grænkorts frá árinu 2008. Íslenska grænkortið er reyndar það fyrsta og eina sem tekur fyrir heilt land en ekki afmarkað svæði eða borg.

Wendy hefur í gegnum árin unnið til ótal verðlauna og nú síðast fór New York Public library þess á leit að fá að varðveita til skjalavörslu öll útgefin kort sem sögulega heimild. Þar verða því öll útgefin kort varðveitt um aldur og ævi, þ.á.m. þau kort sem Náttúran.is hefur gefið út þ.e. Græn Reykjavíkurkort 2010 og 2011 og Grænt Íslandskort 2013. Meira um Wendy og viðurkenningar henni til handa á ecocultural.info.

Ólíkt fólk með ólíkan bakgrunn en sameiginlegt áhugamál hefur alla tíð einkennt samstarfsteymin sem hafa unnið með grænkortagerð. Það er eitt af leyndarmálunum á bakvið gleðina sem einkennt hefur ólíka kortagerð á ólíkum svæðum heims. Lykillinn er samstarf fólks með áhuga á umhverfisgæðum samfélaga.

Umhverfismál af öllum toga óháð sjálfri kortagerðinni hafa átt hug Wendyar alla tíð og hún hefur starfað með ótal samtökum, t.d Sierra Club og fleirum. Hún hefur í áratugi beitt sér fyrir "community gardens"/nytjagarðyrkju í borgarsamfélaginu og eiginmaður hennar og hún standa ásamt stórum hópi að býflugnarækt á Manhattan svo dæmi séu tekin.

Vegna vinsælda kortagerðinnar ferðast Wendy  um víða veröld. Hún heimsótti okkur á Íslandi haustið 2013 og kemur nú aftur í tilefni útgáfu Græna Suðurlandskorts appsins.

Sjá viðburðinn á Facebook. https://www.facebook.com/events/1702423149977702/

Birt:
4. september 2015
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Anna Karlsdóttir „Kynning á Grænum kortum og útgáfu nýs Græns Suðurlandskorts í app-útgáfu “, Náttúran.is: 4. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/04/kynning-graenum-kortum-og-utkomu-nys-graens-sudurl/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 10. desember 2015

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: