Lífrænn september
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Þriðjudagur 01. september 2015 00:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 30. september 2015 23:59
Tengt efni
Lífrænn september
Soil Association stendur fyrir lífrænum september nú í ár undir kjörorðinu elskaðu Jörðina - elskaðu lífrænt. Þó að herferðin sé bresk er engin ástæða til að taka ekki þátt því öllum erum við á sömu Jörðinni og höfum sömu hagsmuni þ.e. að viðhalda og auka frjósemi Jarðar og styðja við heilbrigða matvælaframleiðslu í heiminum, með buddunni.
Lífræna vottunarkerfi Vottunarstofunnar Túns er þróað í samræmi við staðla og í samvinnu við Soil Association.
Hér á Lífræna kortinu sérð þú hvaða aðilar á Íslandi hafa lífræna vottun.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lífrænn september“, Náttúran.is: 3. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/03/lifraenn-september/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: