Jónsmessa
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Miðvikudagur 24. júní 2015 00:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 24. júní 2015 23:59
Tengt efni
Jónsmessan og kyngikrafturinn
Kyngimagnaðar sögur af undrum sem gerast á Jónsmessunótt* er að finna víða í þjóðsögum og hindurvitnum. Flestir kannast við að kýr geti talað mannamál þá nótt og hafa heyrt að gott sé að rúlla sér berstrípuðum úr dögginni á Jónsmessunótt.
Í Sögu daganna eftir Árna Björnsson segir m.a.:
„Nokkrar grastegundir skal vera gott að tína á Jónsmessunótt. Þá má nefna mjaðurt** til að vita hver hefur stolið frá manni. Um hana segir svo: tak mjaðurt sjálfa Jónsmessunótt um lágnættið, lát í munnlag með hreint vatn. Fljóti hún, þá er það kvenmaður, sökkvi hún, þá er það drengur. Skugginn sýnir þér, hver maðurinn er. Þar við skal hafa þennan formála: Þjófur, ég stefni þér heim aftur með þann stuld, sem þú stalst frá mér, með svo sterkri stefnu, sem guð sjálfur stefndi Djöflinum úr Paradís í Helvíti“. Tilvitnun lýkur.
*Jónsmessan er þ. 24. júní en sumarsólstöður eru þ. 21. júní í ár kl. 16:38.
**Mjaðurt [Filipendula ulmaria] hefur löngum verið talin góð við magakveisum og ber ljúfan angan. Hún er oft nefnd „magnýl grasalækna“.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Jónsmessan og kyngikrafturinn“, Náttúran.is: 16. júní 2015 URL: http://nature.is/d/2007/03/21/jonsmessan/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2007
breytt: 16. júní 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: