Grænfánabylting á Austurvelli: förum að leikreglum!
- Staðsetning
- Austurvöllur
- Hefst
- Miðvikudagur 13. maí 2015 16:30
- Lýkur
- Miðvikudagur 13. maí 2015 18:00
- Lýsing
Við stefnum ykkur á Austurvöll með græna fána til að mótmæla því að leikreglur eru brotnar á Alþingi. Á morgun kl. 16:30 verða umræður á Alþingi um tillögu meirihluta atvinnuveganefndar um að færa fjórar virkjanir til viðbótar í virkjanaflokk rammaáætlunar án þess að nægilega faglega hafi verið staðið að málum.
Sýnum samstöðu og skundum á Austurvöll með græna fána til verndar hálendinu og rammaáætlunarferlinu. Skilaboð okkar eru skýr: Vér mótmælum öll!
Dagskrá:
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir- kynnir
Hemúllinn
Tinna Eiríksdóttir
Snorri Baldursson nýkjörinn formaður Landvernd- sjá viðburð
Tengt efni
Rof á rammaáætlun – leikreglur brotnar
Landvernd boðar til mótmælafundar á Austurvelli á morgun, miðvikudag, kl. 16:30. Umræður eru hafnar á Alþingi um tillögu meirihluta atvinnuveganefndar um að færa fjórar virkjanir til viðbótar í virkjanaflokk rammaáætlunar án þess að nægilega faglega hafi verið staðið að málum. Um er að ræða virkjanir í neðrihluta Þjórsár og upp á hálendinu sjálfu, við Skrokköldu á Sprengisandi og Hagavatn sunnan Langjökuls.
Rammaáætlun fjallar um hvar megi virkja og hvar ekki. Virkjanahugmyndirnar hafa ekki hlotið fullnægjandi málsmeðferð sem lög mæla fyrir. Lög um rammaáætlun gera ráð fyrir að faghópar meti verðmæti svæða og áhrif virkjana á þau, gefi þeim stig og raði þeim eftir verðmætum á þessum forsendum. Vorið 2013 tók ný verkefnisstjórn rammaáætlunar til starfa og vinnur nú að 3. áfanga áætlunarinnar. Í endurskoðun hennar á flokkun virkjanahugmynda í neðrihluta Þjórsár var engri stigagjöf beitt og enginn samanburður fékkst við aðrar virkjanahugmyndir. Faghópar hafa ekki enn metið Skrokköldu- og Hagavatnsvirkjun í núverandi áfanga en vinnu þeirra ber lögum samkvæmt að leggja til grundvallar mati verkefnisstjórnar á hverjum tíma. Landvernd telur Alþingi ekki geta fært virkjanahugmyndir til með þessum hætti án þess að þessi vinna hafi farið fram. Því efast Landvernd um að tillaga meirihluta atvinnuveganefndar standist lög.
Burtséð frá lagalegum atriðum er ljóst að verði tillaga meirihluta atvinnuveganefndar að veruleika felur það í sér alvarlegt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu í landinu. Rammaáætlun verður gerð að ónýtu verkfæri. Aðeins eitt ár er í að niðurstöður verkefnisstjórnar núverandi rammaáætlunar liggja fyrir, þar sem hægt yrði að taka ofangreindar virkjanahugmyndir til greina. Landvernd telur nær að bíða þeirrar niðurstöður í stað þess að efna til þessa ófriðar.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Rof á rammaáætlun – leikreglur brotnar“, Náttúran.is: 12. maí 2015 URL: http://nature.is/d/2015/05/12/rof-rammaaaetlun-leikreglur-brotnar/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: