Paradísarmissir?
- Staðsetning
- Hagatorg
- Hefst
- Fimmtudagur 16. apríl 2015 20:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 16. apríl 2015 23:00
- Lýsing
Hátíð til verndar hálendi Íslands í Háskólabíó
Tengt efni
Paradísarmissir? Hátíð til verndar hálendi Íslands
Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Ferðaklúbburinn 4x4, Framtíðarlandið og SAMÚT (Samtök útivistarfélag) bjóða til hálendishátíðar í Háskólabíói.
Með stuttum ræðum í bland við tónlist, myndbönd og skemmtiatriði mun athygli verða vakin á fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands og mikilvægi þess að vernda hálendið.
Meðal listamanna sem fram koma eru AmabadAma og Andri Snær. Frítt inn og allir velkomnir!
Hálendishátíðin verður haldin í stóra sal Háskólabíós 16.apríl kl 20:00.
Tengd myndbönd:
ParadísarmissirBirt:
Uppruni:
Náttúruverndarsamtök ÍslandsFerðafélagið Útivist
Ferðafélag Íslands
Framtíðarlandið
Landvernd
Samtök útivistarfélaga
Ferðaklúbburinn 4x4
Tilvitnun:
Landvernd „Paradísarmissir? Hátíð til verndar hálendi Íslands“, Náttúran.is: 15. apríl 2015 URL: http://nature.is/d/2015/04/03/paradisarmissir-hatid-til-verndar-halendi-islands/ [Skoðað:20. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 3. apríl 2015
breytt: 15. apríl 2015
Fullt hús á Paradísamissi
Frábær viðburður, fjöldinn og samstaðan engu lík. Það er ljóst að fólk elskar landið, ósnortið, af heilum hug og hreinu hjarta.
Hugmyndafræði nítjándu aldar hefur runnið sitt skeið þótt enn séu öfl sem sækja í þá átt í anda og verki.
Sú upplifun sem órofin víðátta jökla, fjalla, fljóta, sands og hrauna veitir þeim sem þangað fer og leyfir sér að njóta er engu lík. Fyllir vitundina auðmjúkum krafti og samruna við sköpunarverkið.
Hér heyrum við og sjáum Ómar Ragnarsson og félaga flytja nýtt lag og texta Ómars „Gætum garðsins“.
Birt:
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Fullt hús á Paradísamissi“, Náttúran.is: 17. apríl 2015 URL: http://nature.is/d/2015/04/17/fullt-hus-paradisamissi/ [Skoðað:20. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: