Ársfundur Veðurstofunnar
- Staðsetning
- Bústaðavegur 9
- Hefst
- Fimmtudagur 27. mars 2014 08:15
- Lýkur
- Fimmtudagur 27. mars 2014 10:30
Tengt efni
Ársfundur Veðurstofu Íslands 2014

Ársfundur Veðurstofu Íslands verður haldinn í húsnæði Veðurstofunnar Bústaðavegi 7-9, fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 8:15–10:30. Fundurinn er opinn öllum og skráning er hafin. Að loknu ávarpi umhverfisráðherra verða flutt fimm erindi. Fundinum verður streymt á vefinn.
Dagskrá:
- 8:15–9:00 Morgunverðarhlaðborð
- Ávarp. Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra
- Styrking innviða. Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands
- Loftslagsbreytingar á norðurhjara. Halldór Björnsson, verkefnisstjóri loftslagsrannsókna
- Veðurfarsbreytingar og væntingar. Trausti Jónsson, sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum
- Hættumat flóða. Ásdís Helgadóttir, sérfræðingur í tölulegri straumfræði og Emmanuel Pierre Pagneux, sérfræðingur í flóðarannsóknum
- Viðvaranir, miðlun og útgáfa. Theodór Freyr Hervarsson, framkvæmdastjóri eftirlits og spár
Sigrún Karlsdóttir náttúruvárstjóri stýrir fundi.
Ársskýrsla Veðurstofunnar (pdf 2,2 mb) mun liggja frammi ásamt útdrætti á ensku (pdf 1,7 mb).
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í tölvupósti á netfangið skraning@vedur.is eða í síma 522 6000.
Ljósmynd: Grýlukert í glugga, Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Veðurstofa Íslands „Ársfundur Veðurstofu Íslands 2014“, Náttúran.is: 26. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/26/arsfundur-vedurstofu-islands-2014/ [Skoðað:20. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: