Klukkuþreyta á Hrafnaþingi
- Staðsetning
- Urriðaholtsstræti 6
- Hefst
- Miðvikudagur 11. febrúar 2015 15:15
- Lýkur
- Miðvikudagur 11. febrúar 2015 16:00
Tengt efni
Hrafnaþing – Klukkuþreyta
Björg Þorleifsdóttir lektor við Læknadeild Háskóla Íslands flytur erindið Klukkuþreyta á Hrafnaþingi miðvikudaginn 11. febrúar kl. 15:15.
Hjá fjölfruma lífverum er mikilvægt að margþætt líkamsstarfsemi sé samhæfð og í samræmi við þau ytri skilyrði sem hún býr við. Lífklukka gegnir veigamiklu hlutverki í því samhengi. Hún gefur taktinn og drífur áfram dægursveiflur lífeðlisfræðilegar ferla, þ. á m. svefn og vöku. Gangur lífklukkunnar er lengri en 24 klst. en til að skorða hana við sólarhringinn er tekið mið af ytri tímamerkjum, þeirra mikilvægast er dögunin, bláa ljósið í morgunbirtunni.
Ef misræmi er á ytri klukkum, þ.e. staðarklukku og náttúrulegri sólarklukku stuðlar það að seinkun lífklukkunnar. Dægurgerð (chronotype) er hugtak sem lýsir kjörsvefntíma einstaklingsins á sólarhringnum. Fólk með seinkaða lífklukku og þar með seinkaða dægurgerð stríðir jafnan við það sem kallað er klukkuþreyta (social jetlag) og afleiðingin er skertur svefn sem rannsóknir sýna að tengist margvíslegum heilsuvanda.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúrufræðistofnun Íslands - NÍ - Garðabæ „Hrafnaþing – Klukkuþreyta“, Náttúran.is: 11. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/02/11/hrafnathingi-klukkuthreyta/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: