Þjórsárver og töfrar Torfajökuls
- Staðsetning
- Bankastræti 7
- Hefst
- Mánudagur 02. febrúar 2015 08:00
- Lýkur
- Mánudagur 02. febrúar 2015 10:00
Tengt efni
Þjórsárver og töfrar Torfajökuls
Kynningarfundur Hálendisferða um fyrirhugaðar gönguferðir um Þjórsárver og Torfajökulssvæði verður haldið Kaffi Sólon þ. 2. ferbrúar frá kl. 8:00 - 10:00. Ósk Vilhjálmsdóttir kynnir gönguferðirnar í máli og myndum.
Fyrst leiðangur í friðlandið í Þjórsárverum. Leiðin liggur um fjallaþyrpinguna Kerlingarfjöll og stórbrotið landslag við rætur Hofsjökuls. Eftir að hafa kynnst náttúrufegurð í gróðurvin Þjórsárvera verður farið um Gljúfurleit þar tækifæri gefst til að kynnast fossinum Dynk í Þjórsá.
Síðan verður kynntur leiðangur um ein möguðustu háhitasvæði í heimi sem kennd eru við Torfajökul. Farið verður um furðu lítt þekkt hverasvæði í Austur- og Vestur-Reykjadölum sem eru utan alfaraleiðar og eldbrunnið landslag við Heklurætur.
Birt:
Tilvitnun:
Hálendisferðir „Þjórsárver og töfrar Torfajökuls“, Náttúran.is: 1. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/02/01/thjorsarver-og-tofrar-torfajokuls/ [Skoðað:20. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: