Heimsþing um friðlýst svæði á Hrafnaþingi
- Staðsetning
- Urriðaholtsstræti 6
- Hefst
- Miðvikudagur 28. janúar 2015 15:15
- Lýkur
- Miðvikudagur 28. janúar 2015 16:00
Tengt efni
Hrafnaþing – Heimsþing um friðlýst svæði / IUCN World Parks Congress 2014
Jón Geir Pétursson skrifstofustjóri skrifstofu landgæða í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu flytur erindið Heimsþing um friðlýst svæði / IUCN World Parks Congress 2014 á Hrafnaþingi miðvikudaginn 28. janúar kl. 15:15.
Úrdráttur úr erindinu:
Í haust var haldið í Sydney, Ástralíu, heimsþing Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna (IUCN) um friðlýst svæði, World Parks Congress sem haldið hefur verið á 10 ára fresti síðan árið 1962. Þetta þing sóttu um 6000 þátttakendur frá 170 löndum með fjölbreyttan bakgrunn. Síðasta þing var haldið í Suður-Afríku.
Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði gegna lykilhlutverki í náttúruvernd flestra ríkja. Á þinginu var fjallað um málefni friðlýstra svæða og náttúruverndar frá fjölmörgum sjónarhornum. Þar má nefna verndarmarkmið, val á svæðum, stofnun svæða, ástand og virkni, stjórnkerfi, fjármögnun, rekstur og málefni frumbyggja o.fl. Þingið var jafnframt vettvangur fyrir útgáfu og umfjöllun um stöðu friðlýstra svæða og stjórnun þeirra.
Frá síðasta þingi fyrir 10 árum hafa orðið ýmsar breytingar sem voru til umfjöllunar. Niðurstöður ráðstefnunnar eru teknar saman í yfirlýsingu sem kallast „Promise of Sydney“ og er ætlað að vera til leiðsagnar við vinnu með friðlýst svæðið á næstu árum.
Málefni þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða eru afar mikilvæg á Íslandi, jafnt og annarsstaðar. Á Íslandi hefur nálægt fimmtungur landsins verið formlega friðlýstur og felldur undir stjórnkerfi þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Jafnframt hafa slík svæði nú orðið þungamiðjan í einum öflugasta atvinnuvegi þjóðarinnar ̶ ferðaþjónustunni. Því höfum við bæði af miklu að miðla hvað varðar þekkingu og reynslu með friðlýst svæði, en getum og þurfum jafnframt mikið af öðrum að læra. Jón Geir sótti þingið og verður í erindinu fjallað um helstu áherslumál þess og þau rædd í samhengi okkar aðstæðna.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúrufræðistofnun Íslands - NÍ - Garðabæ „Hrafnaþing – Heimsþing um friðlýst svæði / IUCN World Parks Congress 2014“, Náttúran.is: 28. janúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/01/28/hrafnathing-heimsthing-um-fridlyst-svaedi-iucn-wor/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: