Námskeið í aðlögun að lífrænum búskap
- Staðsetning
- Þarabakki 3
- Hefst
- Þriðjudagur 15. apríl 2014 09:00
- Lýkur
- Þriðjudagur 15. apríl 2014 17:00
Tengt efni
Námskeið - Aðlögun að lífrænum búskap - fyrstu skrefin
Námskeið verður haldið á vegum Lífrænu akademíunnar í Reykjavík þriðjudaginn 15. apríl 2014 um lífræna aðlögun, framleiðslureglur, leiðbeiningar, eftirlit og vottun, aðlögunarstuðning, vinnslu og markaðssetningu lífrænna afurða. Kjörið tækifæri fyrir bændur og aðra sem hyggjast hefja lífræna ræktun og afla sér þekkingar.
Skráning: ord@bondi.is og tun@tun.is eða í síma 563 0300 og 511 1330.
Þátttökugjald: Kr. 15.000
Lífræna akademían er samstarfsverkefni fag- og hagsmunaaðila á sviði lífrænnar framleiðslu.
Bændasamtök Íslands, Vottunarstofan Tún og VOR, Félag framleiðanda í lífrænum búskap.
Ljósmynd: Nýuppteknar gulrætur, Guðrún A. Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Vottunarstofan Tún ehf „Námskeið - Aðlögun að lífrænum búskap - fyrstu skrefin“, Náttúran.is: 22. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/22/namskeid-adlogun-ad-lifraenum-buskap-fyrstu-skrefi/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: