Eiga mófuglar undir högg að sækja?
- Staðsetning
- Oddi Oddi, Sturlugata 3
- Hefst
- Laugardagur 29. nóvember 2014 10:10
- Lýkur
- Laugardagur 29. nóvember 2014 13:10
Tengt efni
Eiga mófuglar undir högg að sækja?
Laugardaginn 29. nóvember næstkomandi mun Fuglavernd halda ráðstefnu um stöðu og vernd íslenskra mófuglastofna og þá ábyrgð sem við berum á þeim í alþjóðlegu samhengi. Erindin byggja á nýlegum eða nýjum rannsóknum í fuglafræðum og er niðurstaðan fróðleg fyrir alla þá sem áhuga hafa á íslensku fuglalífi.
Ráðstefnan ber yfirskriftina: Eiga mófuglar undir högg að sækja? Staða stofna, búsvæðavernd og alþjóðlegar skyldur og verður haldin í salarkynnum Háskóla Íslands frá 10:10-13:10 í stofu 101 Odda. Hún hefst á því að lagt verður fram yfirlit yfir íslenskar mófuglategundir og útbreiðslu þeirra, svo verður m.a. skýrt hversvegna sumir þessara stofna er eins stórir og raun ber vitni og hvernig það endurspeglar ábyrgð okkar íslendinga í alþjóðlegu samhengi, og þær skuldbindingar sem við höfum undirgengist.
Landnotkun verður rædd – hvaða áhrif t.d. landbúnaður og skógrækt hafa og svo verður sérstakur lestur um mat á stofnum og hvernig best fari að vakta þá. Þetta er svo allt skoðað með verndun þessara stofna í huga.
Dagskrá ráðstefnunnar er að finna á www.fuglavernd.is en hún er styrkt af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og er öllum opin og ókeypis.
Birt:
Tilvitnun:
Fuglavernd „Eiga mófuglar undir högg að sækja?“, Náttúran.is: 26. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/26/eiga-mofuglar-undir-hogg-ad-saekja/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 27. nóvember 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: