Stund jarðar / Earth Hour
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Laugardagur 29. mars 2014 20:30
- Lýkur
- Sunnudagur 30. mars 2014 21:30
Tengt efni
Jarðarstund - Reykjavík slekkur ljósin
Þann 29 mars 2014 slökkvum við ljósin klukkan 20:30 í klukkutíma til að vekja athygli á orkusparnaði, umhverfismálum og velferð jarðar.
Reykjavík tekur þátt í Earthhour viðamiklum viðburði á heimsvísu þar sem borgarbúar draga úr lýsingu í eina klukkustund. Yfir 150 lönd taka þátt víðs vegar um heiminn.
Jarðarstundin er eitt fjölmennasta samstillta einstaklingsframtak í umhverfismálum í heiminum í dag.
Kveikjum ekki rafmagnsljósin milli 20.30 og 21.30, njótum myrkurs, skoðum stjörnurnar og kveikjum svo á kertum og hugsum um hvað við getum lagt af mörkum í umhverfismálum.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Jarðarstund - Reykjavík slekkur ljósin“, Náttúran.is: 22. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/21/jardarstund-reykjavik-slekkur-ljosin/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2014
breytt: 22. mars 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: