Ekkert til spillis
- Staðsetning
- Norræna húsið
- Hefst
- Þriðjudagur 25. nóvember 2014 09:00
- Lýkur
- Þriðjudagur 25. nóvember 2014 15:30
Tengt efni
Ekkert til spillis
Landvernd, Kvenfélagasamband Íslands, Vakandi og Norræna húsið bjóða til málþings um matarsóun í tengslum við Nýtniviku Reykjavíkurborgar í Norræna húsinu 25. nóvember 2014
Dagskrá:
9:00 Ávarp frá skipuleggjendum
9:10 Yasmine Larsen, Unilever Food Solutions í Danmörku
9:50 Jesper Ingemann, Fødevarebanken í Kaupmannahöfn
10:30 Kaffihlé
10:50 Jónína Stefánsdóttir, Matvælastofnun
11:20 Per Hallvard Eliassen, Norska landbúnaðar- og matvælaráðuneytið
12:00 Hádegishlé-Diskósúpa*
13:00 Knútur Rafn Ármann, Friðheimar
13:30 Helga Sigurðardóttir og Herborg Svana Hjelm, Reykjavíkurborg
14:00 Pallborðsumræður. Fyrirlesarar og gestir
Gestir í pallborði:
- Heiða Björg Hilmisdóttir, yfirmaður mötuneytis Landspítalans
- Dominique Plédel, Neytendasamtökunum
- Erna Dröfn Haraldsdóttir, markaðsstjóri Samkaupa
- Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra
15:30 Slit og þakkarorð
Fundarstjóri: Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
Markmið málstofunnar er að ræða lausnir í baráttunni gegn matarsóun. Norrænir gestir segja frá hvernig tekið hefur verið á matarsóun á Norðurlöndunum og rætt verður um leiðir sem færar eru hér heima
Aðgangur á málstofuna er ókeypis og öllum opinn Málstofan fer fram á ensku
Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari frá Slow Food, eldar úr öllu og býður upp á Diskósúpu og notar í það roskið grænmeti sem var á leið í gáminn
Vinsamlegast skráið ykkur á www.matarsoun.is.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Ekkert til spillis“, Náttúran.is: 13. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/13/ekkert-til-spillis/ [Skoðað:23. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: