Hrafnaþing - Að skrá sögu landsins með ljósmyndum. Hverjum ber að varðveita hana?
- Staðsetning
- Urriðaholtsstræti 6
- Hefst
- Miðvikudagur 12. nóvember 2014 09:15
- Lýkur
- Miðvikudagur 12. nóvember 2014 10:00
Tengt efni
Hrafnaþing - Að skrá sögu landsins með ljósmyndum. Hverjum ber að varðveita hana?
Oddur Sigurðsson jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands flytur erindið Að skrá sögu landsins með ljósmyndum. Hverjum ber að varðveita hana? á Hrafnaþingi miðvikudaginn 12. nóvember kl. 9:15.
Eldgos í Heklu.
ATHUGIÐ: Hrafnaþing verður framvegis haldið á morgnana kl. 9:15-10:00.
Ísland er í jarðfræðilegu eðli sínu úthafsbotn og því frábrugðið þorra annarra landa heimsins. Snýr það að eldvirkni, jarðskjálftum, landhæðarbreytingar, gliðnun landsins, jarðhita, landrofi, veðurfari og fleiru. Að öllu þessu samanlögðu má ljóst vera að Ísland er ekki líkt öðrum löndum og breytist mun örar en annars staðar þekkist. Aðrir þættir, tengdir og ótengdir þeim sem ofan eru taldir, orka mjög á útlit landsins svo sem sjávarstöðubreytingar og jöklar að ekki sé talað um mannanna verk sem óðum setja mark sitt á landið. Rannsóknum og skráningu á sérkennum Íslands verður ekki sinnt nema hér á landi. Einn mikilvægasti þáttur þeirra rannsókna er að skrá og varðveita sögu þess lands sem svo ört breytist. Er það bæði í þágu þjóðarinnar og svo mannkyns alls. Ekki er óeðlilegt að sú ábyrgð falli menntamálaráðuneyti í skaut. Nauðsynlegt er að stjórnvöld finni sem fyrst þessum málaflokki fastan stað í kerfinu.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúrufræðistofnun Íslands - NÍ - Garðabæ „Hrafnaþing - Að skrá sögu landsins með ljósmyndum. Hverjum ber að varðveita hana?“, Náttúran.is: 11. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/11/hrafnathing-ad-skra-sogu-landsins-med-ljosmyndum-h/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: