Morgunfundur Vistbyggðarráðs og Náttúran.is um vistvænar byggingavörur, upplýsingar og aðgengi
- Staðsetning
- Ofanleiti 2
- Hefst
- Fimmtudagur 23. október 2014 08:15
- Lýkur
- Fimmtudagur 23. október 2014 10:00
Tengt efni
Morgunfundur Vistbyggðarráðs og Náttúran.is um vistvænar byggingavörur, upplýsingar og aðgengi
Opinn morgunfundur Vistbyggðarráðs verður haldinn fimmtudaginn 23. október í samvinnu við Náttúran.is.
Fjallað verður um vöruþróun, aðgengi að vistvænum byggingavörum sem raunverulegum valkosti við hönnun bygginga og framkvæmdir og hvernig hægt sé að bæta kynningu á umhverfisvottuðum byggingavörum á netinu og í verslunum.
Þá verður kynnt nýtt app, HÚSIÐ og umhverfið, sem Náttúran.is hefur þróað og er til þess fallið að auka skilning almennings á vistvænu umhverfi innan og utan heimilisins og gera upplýsingar um lausnir aðgengilegar.
Kynnt verður smáritið, Val á vistvænum byggingarefnum, sem hægt er að nálgast hjá Arkitektafélagi Íslands, fulltrúar framleiðenda og seljenda deila sínum hugmyndum og reynslu af vistvænni framleiðslu og sagt frá samnorrænu verkefni um Norrænan gagnabanka um vistvæn byggingarefni sem nýlega fór í gang.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal Verkís, Ásbyrgi 1. hæð. Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, fimmtudaginn 23. október 2014, kl. 8:15-9:50.
Dagskrá :
8:15-8:30 Morgunkaffi (rúnstykki/kaffi)
8:30-8:50 Val á vistvænum byggingarefnum - Björn Guðbrandsson arkitekt FAÍ
8:50-9:10 Húsið og umhverfið, upplýsingaveita, samhæfing og miðlun gagna til almennings og fagaðila. Guðrún Arndís Tryggvadóttir og Einar Bergmundur hjá Náttúran.is.
9:10-9:30 Samnorrænn gagnabanki fyrir vistvæn byggingarefni - Björn Marteinsson arkitekt og verkfræðingur.
9:30-9:40 Umhverfisstefna IKEA til framtíðar - Guðný Camilla Aradóttir.
9:40-9:50 Umræður: Hvernig er hægt að auka almenna þekkingu neytenda og undirstrika mikilvægi þess að velja vistvænar byggningavörur.
..........................
Sjá glærur frá fundinum hér að neðan:
Val á vistvænum byggingarefnum - Björn Guðbrandsson arkitekt FAÍ
Húsið og umhverfið, upplýsingaveita, samhæfing og miðlun gagna til almennings og fagaðila. Einar Bergmundur hjá Náttúran.is.
Sjálfbær þróun og umhverfistyfirlýsing vöru - Björn Marteinsson arkitekt og verkfræðingur.
Umhverfisstefna IKEA til framtíðar - Guðný Camilla Aradóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Sigríður Björg Jónsdóttir „Morgunfundur Vistbyggðarráðs og Náttúran.is um vistvænar byggingavörur, upplýsingar og aðgengi“, Náttúran.is: 20. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/14/morgunfundur-vistbyggdarrads-og-natturan-um-vistva/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 14. október 2014
breytt: 12. nóvember 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: