ShopShow - opnun
- Staðsetning
- Strandgata 34
- Hefst
- Laugardagur 22. mars 2014 15:00
- Lýkur
- Laugardagur 22. mars 2014 17:00
Tengt efni
ShopShow - HönnunarMars
HönnunarMars stendur fyrir dyrum. Margar áhugaverðar sýningar og viðburðir verða í boði á HönnunarMars í ár. Nokkrar sýninganna hafa vistvæna hönnun sem aðalþema. Ein af þeim er ShopShow.
ShopShow er sýning á norrænni samtímahönnun sem hefur verið sett upp á Norðurlöndunum. Þar er vakin athygli á samspili framleiðslu og neyslu og lögð áhersla á rekjanleika vörunnar. Sýningin sem er nú sett upp í Hafnarborg er unnin af Form Design Center í Malmö. Meðal þátttakenda eru hönnunarteymin Hugdetta og Vík Prjónsdóttir.
Opnun laugardaginn 22. mars kl. 15.
Ljósmynd: Gagnsær stóll úr smiðju Hugdettu hönnunarteymis Róshildar Jónsdóttur og Snæbjarnar Þórs Stefánssonar.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „ShopShow - HönnunarMars“, Náttúran.is: 20. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/20/shop-show-honnunarmars/ [Skoðað:24. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 21. mars 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: