Bíllausi dagurinn
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Mánudagur 22. september 2014 00:00
- Lýkur
- Mánudagur 22. september 2014 23:59
Tengt efni
Bíllausi dagurinn er 22. september
Tilgangur „bíllausa dagsins“ er að fá fólk til að huga að öðrum ferðamáta en með einkabílum. Fyrir fjölda fólks eru til valkostir s.s. almenningsvagnar, reiðhjól, ganga eða samflot. Nú á tímum samdráttar hefur dregið úr akstri einkabíla og aukinn áhugi er á öðrum leiðum. En það er náttúrulega ekki nóg að breyta háttum sínum einn dag á ári. Það þarf að breyta háttum allt árið.
Ljósmynd af hjolreidar.is.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Bíllausi dagurinn er 22. september“, Náttúran.is: 18. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/18/billausi-dagurinn-22-september/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 3. október 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: