Loftslagsganga í Reykjavík
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Sunnudagur 21. september 2014 14:00
- Lýkur
- Sunnudagur 21. september 2014 16:00
Tengt efni
Loftslagsganga í Reykjavík
Þann 23. September næstkomandi munu leiðtogar heims funda í New York um loftslagsbreytingar. Aðalritari Sameinuðuþjóðanna, Ban Ki-moon, er gestgjafi fundarins og markmið hans, og um leið alþjóðasamfélagsins, er að gefa ráðamönnum tækifæri til að ræða nauðsyn aðgerða, nú rúmu ári fyrir Loftslagsþingið sem haldið verður í París í lok næsta árs. Þar er stefnt að bindandi samkomulagi aðildarríkjanna um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Til að undirstrika kröfur okkar um að Ísland axli sína ábyrgð stefnum við að því að hittast þann 21. september kl. 14:00 á horni Kárastígs, Frakkastígs og Njálsgötu (nálægt söluturninum Drekinn – eða á „Drekasvæðinu“). Gengið verður upp Kárastíginn yfir á Skólavörðustíg og sem leið liggur niður á Austurvöll.
Meðal skipuleggjanda viðburðarins á Íslandi eru Náttúruverndarsamtök Íslands og Grugg og fjöldi af Frónbúum sem láta sig málið varða.
Á http://watchdisruption.com/ má sjá kvikmyndina "Disruption/ The movie "Disruption
Birt:
Tilvitnun:
Náttúruverndarsamtök Íslands „Loftslagsganga í Reykjavík“, Náttúran.is: 18. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/18/loftslagsganga-i-reykjavik/ [Skoðað:20. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. september 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: