Ljósmyndaleikur Hjarta landsins
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Þriðjudagur 16. september 2014 00:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 15. október 2014 23:59
Tengt efni
Ljósmyndaleikur Hjarta landsins
Hafinn er ljósmyndaleikur Hjarta landsins á vegum Landverndar. Með þátttöku gefst öllum áhugasömum tækifæri á að vekja athygli á verðmætunum sem fólgin eru í víðernum hálendisins og taka undir kröfuna um vernd þeirra. Þú tekur þátt með því að senda ljósmynd sem þú hefur tekið á hálendinu á landvernd@landvernd.is merkt ,,hálendismynd“ eða birtir hana á instagram merkta #hjartalandsins.
Verðlaun verða veitt fyrir bestu myndirnar. Verðlaunin eru gönguskór frá Útivist, gönguferð með Ferðafélagi Íslands, iPhone 5C frá Símanum og flugferð yfir hálendið með Ómari Ragnarssyni. Hægt er að senda inn myndir til 15. október.
Hálendið – hjarta landsins er verkefni sem Landvernd, Ferðaklúbburinn 4x4, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist og Samtök útivistarfélaga (SAMÚT) standa að í sameiningu. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands, efla umræðu um þær og fylkja fólki á bak við kröfuna um að hálendinu verði hlíft. Sjá nánar á hjartalandsins.is og heartoficeland.org.
Ljósmynd: Hjartafell í Hofsjökli, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Ljósmyndaleikur Hjarta landsins“, Náttúran.is: 16. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/16/ljosmyndaleikur-hjarta-landsins/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 2. mars 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: