Jafndægur að vori
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Fimmtudagur 20. mars 2014 00:00
- Lýkur
- Föstudagur 21. mars 2014 00:00
Tengt efni
Í dag er jafndægur að vori
Í dag er jafndægur að vori, þ.e. nóttin er jafnlöng deginum. Í Riti Björns Halldórsson Sauðlauksdal segir; „Martíus, eða jafndægramánuður ... nú er vertíð við sjó og vorið byrjar“. Í tilefni jafndægurs að vori og til að tengja okkur náttúrunni í vorbyrjun er tilvalið að rifja upp gamla Bændadagatalið, en svo segir í 6. kafla Ætigarðsins - handbók grasnytjungsins eftir Hildi Hákonardóttur:
Bændaalmanakið:
Safnarinn og ræktandinn fylgist stöðugt með veðráttunni, birtunni og hitafarinu og lifir þannig með árstíðunum. Í okkar almanaki er fátt sem minnir á gróðurfar eða fellur að lífsmunstri okkar, fremur að við höfum aðlagað lífsmunstrið að almanakinu þó það ætti að vera á hinn veginn. Almanakið fylgir ekki tungli og daga fjöldi mánaðanna er tilviljanakenndur, eiginlega hálfgert klúður. Mánaðanöfnin janúar, mars, maí og júní koma úr fornri goðafræði, svo sú tilfinning að það eigi að skrifa þau með stórum staf er ekki út í hött. Febrúar táknar trúlega hreinsun og var síðasti mánuðurinn í eldra tímatali Rómverja. Apríl á sér ekki augljósa skýringu en kann að merkja – að opna eða gróandi jörð. Keisararnir Júlíus Caesar og Ágústus áttu báðir þá ósk heitasta að verða teknir í guðatölu og fengu því framgengt að mánuðirnir júlí og ágúst væru nefndir eftir sér. Þeir gættu þess að sínir mánuðir teldu 31 dag. September, október, nóvember og desember þýða 7., 8., 9. og 10. mánuður ársins, en það eru þeir ekki, heldur eru nöfnin leifar frá eldra tímatali.
Þessi nöfn var fyrst farið að nota hér á landi á 18. öld, þegar breytt var frá júlíanska tímatalinu til hins gregoríanska. Tilraun til að fella þetta nýja almanak að íslenskum atvinnuháttum gerðu bæði Björn í Sauðlauksdal og séra Bjarni Arngrímsson á Melum er reyndi að gera þetta aðgengilegt í lestrarkveri handa börnum sem lengi var notað. Januarius, eða miðsvetrarmánuður ... hann hálfnar veturinn. Fyrra part þessa mánaðar er brundtími sauðfjár. Februarius, eða föstuinngangsmánuður ... þá búa karlmenn sig til fiskveiða á verstöðum. Martíus, eða jafndægramánuður ... nú er vertíð við sjó og vorið byrjar. Aprílio, eða sumarmánuður ... þá byrjar sumarmisseri, lengir dag og minnka oft frosthörkur. Majus, eða fardagamánuður ... þá er unnið á túnum, sáð til matar, sauðburður hefst og fuglar verpa. Júníus, eða náttleysumánuður ... þá er lengstur dagur, nú er plantað káli, rúið sauðfé, lömbum fært frá og rekið á afrétt. Júlíus, eða miðsumarsmánuður ... þá eru dregin að búföng, flutt í sel, farið á grasafjall og byrjaður sláttur. Augustus, eða heyannamánuður ... þá standa heyannir, hirt tún og yrktar engjar. September, eða aðdráttarmánuður ... þá enda heyannir, en byrjast haustið, gjörð fjallskil, hyrtar matjurtir. Oktober, eða slátrunarmánuður ... þá byrjar vetrar misserið, nú er færð mykja á tún, slátrað búfé og börn byrja stöfun. Nóvember, eða ríðtíðarmánuður ... þá er sest að við ullar vinnu og hyrtur búsmali. Desember, eða skammdegismánuður ... hann endar árið, þá er stystur dagur og vökur lengstar.
Grafík: Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Í dag er jafndægur að vori“, Náttúran.is: 20. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2009/03/20/i-dag-er-jafndaegur-ao-vori/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 20. mars 2009
breytt: 20. mars 2016


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: