Vinnustofa - Vegan- og grænmetisfæði
- Staðsetning
- Sólheimar
- Hefst
- Laugardagur 06. september 2014 13:00
- Lýkur
- Laugardagur 06. september 2014 17:00
Tengt efni
Vinnustofa - Vegan- og grænmetisfæði
Pami Sami er frá Portúgal og býr og starfar á Sólheimum en hún er að ljúka námi í grasalækningum í Bretlandi.
Pami heldur vinnustofu á Sólheimum þ. 6. september nk. eftir hádegi þar sem hún miðlar af vitneskju sinni um vegan- og grænmetisfæði og tekur það skrefinu lengra en við eigum að venjast.
Pami heldur úti bloggsíðunni receitasdomenuverde.blogspot.com en þar er að finna fjölda frábærra og ekki síður fallegra uppskrifta og ráða úr ríki náttúrunnar.
Efnið á vefnum er bæði á portúgölsku og ensku.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna á cristal_cosmico@hotmail.com.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Vinnustofa - Vegan- og grænmetisfæði “, Náttúran.is: 28. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/28/vinnustofa-vegan-og-graenmetisfaedi/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 9. nóvember 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: