Ekkert rusl vikan
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Mánudagur 01. september 2014 00:00
- Lýkur
- Mánudagur 01. september 2014 00:00
Tengt efni
Ekkert rusl vikan - Zero Waste Week
Ekkert rusl vikan (Zero Waste Week) er árlegur viðburður á heimsvísu en í ár er hún haldin dagana 1.-7. september.
Í Ekkert rusl vikunni er markmiðið að henda „engu“ heldur spara, endurnýta og síðast en ekki síst verða meðvitaður um það gríðarlega magn sem við hendum í hverri viku.
Á vefnum zerofoodwaste.co.uk eru ýmsar tillögur um hvað við getum gert til að minnka sóun og hætta að henda verðmætum.
Tillögur að markmiðum:
- Hætta að nota plastburðarpoka
- Útbúa nesti með engu rusli
- Flokka fernurnar mínar
- Gefa föt til góðgerðarmála
- Kaupa umbúðalaust!
- Los mig við dót til endurnýtingar án þess að það þurfi að fara til urðunar
- Hætta að sóa mat
- Lagaa í stað þess að henda
- Láttu ganga!
Hvað get ég gert?
Googlaðu „afganga“ eða „nýta afganga“
Deildu þínum eigin afgangauppskrift, t.d. hingað á Náttúran.is, á Matarsoun.is eða á facebooksíðuna þína.
Meira um verkefnið á zerofoodwaste.co.uk
Ljósmynd: Rusl til urðunar í Álfsnesi, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ekkert rusl vikan - Zero Waste Week“, Náttúran.is: 27. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/27/ekkert-rusl-vikan-zero-waste-week/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: