Til að hvetja rekstraraðila farfuglaheimila á Íslandi til að vinna markvisst að umhverfismálum ákvað stjórn Farfugla árið 2003 að þau heimili sem uppfylla ákveðin viðmið á sviði umhverfismála fái heimild til að kalla sig Græn farfuglaheimili. Því til staðfestingar fá þau að nota umhverfismerki samtakanna*. Þessi viðmið byggja á almennum gæðastöðlum sem öll farfuglaheimili þurfa að uppfylla en til að fá heimild til að nota umhverfismerkið þurfa heimilin auk þess að uppfylla ýmis viðbótarskilyrði sem tengjast umhverfismálum.

Á nýafstöðnu Gestgjafamóti Farfugla fékk Farfuglaheimilið á Bíldudal heimild til að kalla sig Græn farfuglaheimili. Nú eru því tólf farfuglaheimili hérlendis sem eru einkennd vegna góðrar frammistöðu í umhverfismálum, tíu þeirra bera merkið Græn farfuglaheimili og tvö bera Norræna umhverfismerkið Svaninn.

Ráðgjafarfyrirtækið Alta hefur unnið með Farfuglum síðan 2004 að þróun viðmiða fyrir Græn farfuglaheimili og gert úttektir á þeim heimilum sem sótt hafa um merkið. Í úttektunum hefur komið í ljós að umhverfisstarf þessara heimila hefur skilað sér m.a. í jákvæðri ímynd, sparnaði, áhuga gesta og ánægðari eigendum. Óhætt er að mæla sérstaklega með Grænum farfuglaheimilum fyrir alla sem eiga leið um landið.

Náttúran óskar gestgjöfum og starfsfólki á Bíldudal innilega til hamingju með viðurkenninguna og vonumst til að hún verði fleirum hvatning til góðra verka í þessum mikilvæga málaflokki.

Sjá þá aðila sem vinna skv. viðmiðum um Græna farfuglaheimili hér á Grænum síðum.

*Ath. að ekki eru um viðurkennt þriðja aðila umhverfismerki sem slíkt að ræða heldur merki sem Samtök Farfugla stendur sjálf að. Sjá þá aðila sem vinna skv. viðmiðum um Græna farfuglaheimili hér á Grænum síðum.

Ljósmynd: Silja Baldvinsdóttir og Björn M. Magnússon gestgjafar á Farfuglaheimilinu á Bíldudal.

Birt:
11. nóvember 2010
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Farfuglaheimilið Bíldudal bætist í hóp Grænna farfuglaheimila“, Náttúran.is: 11. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/11/farfuglaheimilid-bildudal-baetist-i-hop-graenna-fa/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: