Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins
Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Þetta er í 10. sinn sem samkeppnin er haldin meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.
Að verkefnasamkeppninni standa umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur.
Skilafrestur verkefna er til 1. apríl 2016 og skal senda þau á netfangið postur@uar.is eða í bréfpósti á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfis- og auðlindarráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins.
Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir, ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bæklingar, myndbönd og hljóðverk. Í stuttu máli er frjálst að skila inn verkefnum í hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og umfjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs.
Samkeppnin er kjörið tækifæri fyrir nemendur og kennara að koma á framfæri verkefnum sem þeir fyrrnefndu hafa þegar unnið í skólanum því ekki er skilyrði að verkefnin séu sérstaklega unnin fyrir samkeppnina.
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, útnefnir Varðliða umhverfisins við hátíðlega athöfn á Degi umhverfisins 25. apríl en auk þess fá varðliðarnir glaðning í formi upplifunar af einhverju tagi í samráði við skóla þeirra. Allir þátttakendur í samkeppninni fá viðurkenningarskjal.
Í fyrra voru nemendur í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ útnefndir Varðliðar umhverfisins fyrir margþætt verkefni sem spönnuðu allt frá gerð myndbanda, fréttaþátta, heimildamynda og tónlistar til ítarlegrar áætlunar um það hvernig heimili viðkomandi nemanda gæti bætt sig í sjálfbærum lífsstíl. Loks var áskorun nemendanna um úrbætur í umhverfismálum tekin fyrir hjá umhverfisnefnd bæjarins.
Nánari upplýsingar um keppnina eru á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
-
Varðliðar umhverfisins - móttaka verkefna
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins“, Náttúran.is: 29. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/29/oskad-eftir-verkefnum-fra-vardlidum-umhverfisins/ [Skoðað:21. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.