Af FB viðburði um málstofuna. Höfundur ókunnur.Sunnudaginn 10. janúar kl 13:00-15:00 verður haldið málþing á vegum Rannsóknarstofu í listkennslufræðum, rannsóknarhóps um menntun til sjálfbærni í Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91.

Valgerður Hauksdóttir, myndlistarmaður mun halda stutta kynningu á doktorsverkefni sínu þar sem hún skoðar menntun til sjálfbærni og sjálfbæra efnisnotkun í listsköpun.

Aðal áhersla málþingsins verður að finna út úr því hverjar áherslur rannsóknarhópsins um listir og menntun til sjálfbærni ætti að vera.

Skipt verður í hópa út frá áhugasviðum hvers og eins.

Upp hafa komið tillögur að umræðum:

  • Þróunarverkefni í grunnskólum.
  • Þróunarverkefni í framhaldsskólum.
  • Samfélagstengd verkefni.
  • Útgáfa t.d. bók, greinar, photo essay o.s.frv.
  • Sýningar.
  • Vinnustofur og endurmenntunarnámskeið.
  • Ráðstefnur t.d. Hugarflug og Menntakvika.
  • Styrkumsóknir.

Sjá viðburðinn á Facebook.


Birt:
4. janúar 2016
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Ásthildur Björg Jónsdóttir „Málstofa um listir og menntun til sjálfbærni“, Náttúran.is: 4. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/04/malstofa-um-listir-og-menntun-til-sjalfbaerni/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: