Karen Jónsdóttir eigandi Kaja organic ehf tekur við vottunarskjalinu úr hendi Rannveigar Guðleifsdóttur frá Vottunarstofunni Túni.Fyrirtækið Kaja orgainc ehf. hefur fengið  vottunina „Vottað lífrænt“ frá Vottunarstofunni Túni fyrir pökkun á lífrænum vörum.

Kaja organic getur nú pakkað um 50 tegundum af lífrænt vottuðum vörum í minni einingar sem lífrænt vottaðri matvöru.

Kaja orgainc ehf. er því komið á Lífræna kortið í flokknum Vottað lífrænt.

Náttúran óskar Karenu Jónsdóttur eiganda Kaja organic til hamingju með vottunina.

Sjá Kaja organic ehf. hér á Grænum síðum.

Birt:
13. maí 2015
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Kaja organic ehf. fær lífræna vottun á pökkun“, Náttúran.is: 13. maí 2015 URL: http://nature.is/d/2015/05/12/kaja-organic-ehf-faer-lifraena-vottun-pokkun/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 12. maí 2015

Skilaboð: