Þjórsárver og töfrar Torfajökuls

Í Þjórsárverum. Ljósm. Hálendisferðir.
Fyrst leiðangur í friðlandið í Þjórsárverum. Leiðin liggur um fjallaþyrpinguna Kerlingarfjöll og stórbrotið landslag við rætur Hofsjökuls. Eftir að hafa kynnst náttúrufegurð í gróðurvin Þjórsárvera verður farið um Gljúfurleit þar tækifæri gefst til að kynnast fossinum Dynk í Þjórsá.
Síðan verður kynntur leiðangur um ein möguðustu háhitasvæði í heimi sem kennd eru við Torfajökul. Farið verður um furðu lítt þekkt hverasvæði í Austur- og Vestur-Reykjadölum sem eru utan alfaraleiðar og eldbrunnið landslag við Heklurætur.
-
Þjórsárver og töfrar Torfajökuls
- Staðsetning
- None Bankastræti 7
- Hefst
- Mánudagur 02. febrúar 2015 08:00
- Lýkur
- Mánudagur 02. febrúar 2015 10:00
Tengdir viðburðir
Birt:
1. febrúar 2015
Tilvitnun:
Hálendisferðir „Þjórsárver og töfrar Torfajökuls“, Náttúran.is: 1. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/02/01/thjorsarver-og-tofrar-torfajokuls/ [Skoðað:25. maí 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.