Með náttúrunni – Gunnsteinn Ólafsson í eldlínunni - 1. þáttur
Komið þið sælir kæru náttúruunnendur!
Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður er einn níumenninganna sem seint á síðasta ári voru dæmdir fyrir mótmæli við vegalagningu í Gálgahrauni, í október 2013. Næstu vikurnar segir hann frá því hér í Grænvarpi Náttúran.is hvers vegna hann tók þátt í mótmælum við vegagerð gegnum hraunið, aðgerðunum, framkomu lögreglu, fangelsisvist, dómnum og áfrýjun til Evrópudómstólsins.
Gunnsteinn er fæddur á Siglufirði og er því ekki tengdari Gálgahrauni en mörgum öðrum stöðum á landinu. Hann vildi láta til sín taka varðandi náttúruvernd og Gálgahraun varð fyrir valinu þegar hann flutti á Álftanes árið 1999. Eftir að hann skrifaði grein um málið var ekki aftur snúið. Gunnsteinn var mikið í gönguferðum með foreldrum sínum þegar hann var ungur og þykir mjög vænt um Ísland og náttúru þess. Þegar hann var 19 ára fór hann í 6 vikna leiðangur um hálendið með breskum skólakrökkum en þar komst hann í ótrúlegt samband við náttúru landsins.
Hann hafði mikinn áhuga á að læra jarðfræði en tónlistin varð þó fyrir valinu. Eftir tónlistarnám í Þýskalandi starfaði hann sem leiðsögumaður á Íslandi og þá gerði hann sér grein fyrir hvað hér er einstakt landslag. Einhverjir gaurar mega ekki bara koma og eyðileggja það segir Gunnsteinn. Ég skil ekki hvers vegna það var byggð heilt hverfi á hrauni sem var á náttúruminjaskrá segir hann.
Þegar ég fór að kynna mér málin kom í ljós að það átti að byggja umferðamannvirki fyrr 50 þúsund bíla á sólarhring á hrauni sem er á náttúruminjaskrá. Mér fannst þetta eitthvað skrítið. Umhverfismatið reynist bara vera blöff og fólk sem átti að koma með athugasemdir hafði ekki spyrnt við fótum. Mér fannst ekki hægt að láta stjórnsýsluna ráðskast svona með landið og fór aðskipta mér af. Það endaði með mótmælum og handtökum en ég held að það hafi vakið menn til umhugsunar um hvernig stjórnsýslan tekur á sínum málum. Fyrsta greinin mín birtist þ. 4. apríl 2009.
Ég var Hraunavinur en hafði ekki verið virkur fram að þessu. Nú var baráttan tekin upp að fullu, haldnir fundir, skrifaðar greinar og farið í gönguferðir. Skelfilegast er að umhverfismatið sem leyfði þessar framkvæmdir virtist vera eilíft. Gert var ráð fyrir 50 þúsund bíla umferð án rökstuðnings. Samkvæmt vegagerðinni eykst umferðin aðeins um 6% á ári þó datt engum í huga að gagnrýna slíkt mannvirki. Enginn umsagnaraðila minntist á að hraunið væri á náttúruminjasrká. Það var ekki fyrr en við bentum á það að það var tekið með í reikninginn segir Gunnsteinn
Steinunn Harðardóttir.
Tengdar hjóðupptökur:
Gunnsteinn Ólafsson IBirt:
Tilvitnun:
Steinunn Harðardóttir „Með náttúrunni – Gunnsteinn Ólafsson í eldlínunni - 1. þáttur“, Náttúran.is: 30. janúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/01/29/med-natturunni-gunnsteinn-olafsson-i-eldlinunni-1-/ [Skoðað:21. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 29. janúar 2015
breytt: 1. mars 2015