Börn í Waldorfskólanum Lækjarbotnum að búa til þæft grænmeti og ávexti fyrir jólabasarinn.Hinn árlegi Jólabasar Waldorfleikskólans Yls og Waldorfskólans í Lækjarbotnum verður haldinn laugardaginn 15. nóvember milli kl.12:00 og 17:00.

Margir fallegir hlutir verða í boði í umhverfi og stemmningu sem hverjum og einum er hollt að upplifa; m.a. brúðuleikhús, barnakaffihús, „Waldorfsseríur", jurta apótek, handunnar jólagjafir úr náttúruefnum, kaffi og kökur, Eldbakaðar pizzur og skemmtiatriði í skemmunni

Járnsmiðjan verður opin og þar er hægt að sjá járnsmið að störfum.

Komdu og njóttu með okkur í Lækjarbotnum, gullkistu sköpuð af náttúrunnar hendi stutt frá höfuðborginni.

Sjá Waldorfskólann í Lækjarbotnum hér á Græna kortinu.


Birt:
7. nóvember 2014
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Jólabasar Waldorfskólans í Lækjarbotnum“, Náttúran.is: 7. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/07/jolabasar-waldorfskolans-i-laekjarbotnum/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: