Með náttúrunni - Mummi, Guðmundur Ingi Guðbrandsson í eldlínunni - 1. þáttur
Komið þið sælir kæru náttúruunnendur!
Næstu mánuðina er ætlunin að kynna hér í þættinum „Með náttúrunni“ nokkra einstaklinga sem eru og hafa verið í eldlínunni fyrir náttúruvernd í landinu. Ef ekki væri fyrir störf þeirra þá væri eflaust öðruvísi umhorfs á Íslandi en nú er.
Þennan mánuðinn verður Guðmundur Ingi Guðbrandsson eða Mummi eins hann er kallaður í „eldlínunni“. Hann er framkvæmdastjóri Landverndar sem eru frjáls félagasamtök er starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Hlusta á þáttinn.
Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfi.
Þau eru því mörg verkefnin sem þarf að vinna á sviði landverndar í landinu og í mörg horn að líta hjá framkvæmdastjóranum. Við Mummi munum því ræða saman um nokkur mikilvæg málefni svo sem virkjanaframkvæmdir, hjarta landsins og ágang vvegna fjölgunar ferðamanna, í fjórum þáttum og mun afraksturinn birtast hér í Náttúran.is næstu vikurnar.
En hver er Guðmundur Ingi Guðbrandsson? Hvarflaði það að honum sem ungum dreng að hann ætti eftir að vera í forystusveit fyrir landvernd?
Útdráttur úr viðtalinu:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson framkvæmdastjóri Landverndar ólst upp við landbúnaðarstörf og dreymdi um að verða bóndi. Góðir bændur hugsa vel um landið og stunda ekki rányrkju segir hann. Á hverju ári fór hann með fjölskyldunni í Hítardal þar sem orðið hefur mikil landeyðing og voru það fyrstu kynni Mumma af neikvæðum áhrifum mannsins á náttúruna. Þessu þurfti að breyta fannst honum en hann er alinn upp við áherslu á góða umgengni um náttúruna og í uppeldinu var lögð áhersla á að hann og bræður hans væru meðvitaðir um þau áhrif sem þeir hefðu með gjörðum sínnum. Mummi var mikill dýravinur strax sem barn og hafði mikinn áhuga á plöntum.
Hann varð þó ekki bóndi heldur líffræðingur, lærði líffræði við Háskóla Íslands og rannsakaði bæði plöntur og ferskvatnsfiska en það er nokkuð óvanaleg blanda. Síðan stundaði hann nám í umhverfisfræðum við Yale háskóla og bætti svo við námi í umhverfisstjórnun í lokin. Fyrst eftir að hann kom heim vann hann hjá Landgræðslu ríkisins, síðan Háskóla Íslands þar sem hann stundaði rannsóknir og kennslu og síðan við stofnun Sæmundar Fróða.
Fyrir um 3 árum, áður en hann var ráðinn framkvæmdastjóri Landverndar, var hann farinn að ganga erinda náttúrunnar af fullum krafti. Í dag vinna 5 manns í fullu starfi hjá Landvernd en allir nema Mummi sjá um afmörkuð verkefni. Auk framkvæmdastjórnarinnar vinnur hann að náttúruverndarmálum sérstaklega. Auk hinna launuðu starfsmanna er fjöldinn allur af fólki sem leggur mikið til málanna sem sjálfboðaliðar í náttúruvernd.
„Allt þetta fólk eru eiginlega batteríin sem drífa mann áfram“ segir Mummi. Þetta er fjölbreyttur hópur sem sameinar krafta sína til að verja náttúru landsins bæði staðbundin félög og einstaklingar. Það er mjög mikilvægt fyrir Landvernd að eiga þetta fólk að því við getum ekki haft augu og eyru allstaðar.
Frá því Guðmundur Ingi hóf störf hjá Landvernd hefur hann og formaðurinn Guðmundur Hörður, sem kjörinn var formaður á svipuðum tíma, lagt mikla áherslu á að efla innviðina og hefur félagafjöldi aukist úr 500 í 3000. Einnig hefur verið lögð áhersla á að ná inn fjármunum til að efla starfið og bætt hefur verið við tveimur nýjum langtímaverkefnum. Annað er loftslagsverkefni í samvinnu við Höfn í Hornafirði og hitt er landgræðsluverkefni sem snýr að vistheimt sem unnið er með grunnskólum á suðurlandi.
Einnig er lögð áhersla á að styrkja og efla Grænfána- og Bláfánaverkefnið. Í fyrra haust hófst svo spennandi verkefni í Þjórsárverum sem heitir „Hálendið hjarta landsins“. Því er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um hálendi landsins og þær virkjanaframkvæmdir sem þar eru fyrirhugaðar og fá almenning til að styðja við baráttuna um að hálendinu verði hlíft. Í apríl komu svo Útivist, Ferðafélag Íslands 4x4 og Samtök útivistarfélaga (SAMÚT) inn í þetta verkefni og vonast er til að í framtíðinni verði hægt að ráða starfsmann. Þetta er náttúrulega eitt stæsta náttúruverndarverkefni samtímans hér á Íslandi, og því eitt af baráttumálum Landverndar.
„Það verður að halda hálendi Íslands án frekari stórframkvæmda“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson framkvæmdastjóri Landverndar en hann var Með náttúrunni, í eldínunni þessa vikuna. Í næstu viku ræðum við saman um ferðaþjónustuna og aukinn ágang á náttúruna vegna fjölgunar ferðamanna.
Steinunn Harðardóttir.
Tengdar hjóðupptökur:
Mummi hjá Landvernd IBirt:
Tilvitnun:
Steinunn Harðardóttir „Með náttúrunni - Mummi, Guðmundur Ingi Guðbrandsson í eldlínunni - 1. þáttur“, Náttúran.is: 8. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/08/med-natturunni-gudmundur-ingi-gudbrandsson-i-eldli/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 3. október 2014