Viltu taka þátt í vinnustofu í vistrækt?
Paulo Bessa heldur eins dags vinnustofu í vistrækt og visthönnun á Sólheimum sunnudaginn 27. júlí næstkomandi og er öllum boðið að taka þátt og kynna sér hugmyndafræði vistræktar.
Þátttaka kostar ekkert en þeir sem vilja leggja eitthvað til mega það. Þátttakendur taki með sér eitthvað til að leggja til sameiginlegs hádegisverðar. Annars er boðið upp á kaffi, te og kökur í boði hússins.
Vinnustofan snýst um að svara þessum spurningum og leita svara saman:
- Hvernig notum við vistrækt á Íslandi?
- Hvernig ræktum við skógargarð?
- Hvaða tvíæru plöntur henta hér?
- Sýndu mér hvernig....!
- Hvað er hægt að rækta á Íslandi?
- Gefðu mér innblástur!
- Skiptumst á fræjum!
Dagskrá vinnustofunnar verður þannig:
09:00 Morgunkaffi / Þátttakendur kynna sig
09:30 Grunngildi og viðmið vistræktar
10:00 Aðferðir, halli, útgagnspunktar, mynstur, svæði
11:00 Kaffipása
11:20 Hönnun við mismunandi loftslagsskilyrði. Hönnun á Íslandi.
13:00 Hádegisverður
14:00 Vatn og tré
15:00 Matarskógar
16:00 Jarðvegur, að rækta mat á Íslandi, tvíæringar
17:00 Kaffipása
17:30 Samfélagslegi þáttur vistræktar
18:00 Einfaldar hönnunaræfingar
18:30 Hugarflug / Samvera / Fræskipti
19:00 Garðaskoðun
Skráning hjá Paulo pcbessa@gmail.com
Ljósmynd: Paulo Bessa hlúir að hinum ýmsu plöntum sínum, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
-
Vistræktarvinnustofa Paulo Bessa
- Staðsetning
- None Sólheimar
- Hefst
- Sunnudagur 27. júlí 2014 09:00
- Lýkur
- Sunnudagur 27. júlí 2014 19:00
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Paulo Bessa „Viltu taka þátt í vinnustofu í vistrækt?“, Náttúran.is: 18. júlí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/07/18/viltu-taka-thatt-i-vinnustofu-i-vistraekt/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.