Ársfundur Veðurstofu Íslands verður haldinn í húsnæði Veðurstofunnar Bústaðavegi 7-9, fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 8:15–10:30. Fundurinn er opinn öllum og skráning er hafin. Að loknu ávarpi umhverfisráðherra verða flutt fimm erindi. Fundinum verður streymt á vefinn.

Dagskrá:

  • 8:15–9:00 Morgunverðarhlaðborð
  • Ávarp. Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra
  • Styrking innviða. Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands
  • Loftslagsbreytingar á norðurhjara. Halldór Björnsson, verkefnisstjóri loftslagsrannsókna
  • Veðurfarsbreytingar og væntingar. Trausti Jónsson, sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum
  • Hættumat flóða. Ásdís Helgadóttir, sérfræðingur í tölulegri straumfræði og Emmanuel Pierre Pagneux, sérfræðingur í flóðarannsóknum
  • Viðvaranir, miðlun og útgáfa. Theodór Freyr Hervarsson, framkvæmdastjóri eftirlits og spár

Sigrún Karlsdóttir náttúruvárstjóri stýrir fundi.

Ársskýrsla Veðurstofunnar (pdf 2,2 mb) mun liggja frammi ásamt útdrætti á ensku (pdf 1,7 mb).

Vinsamlega tilkynnið þátttöku í tölvupósti á netfangið skraning@vedur.is eða í síma 522 6000.

Ljósmynd: Grýlukert í glugga, Guðrún Tryggvadóttir.


Birt:
26. mars 2014
Tilvitnun:
Veðurstofa Íslands „Ársfundur Veðurstofu Íslands 2014“, Náttúran.is: 26. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/26/arsfundur-vedurstofu-islands-2014/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: