Ársfundur Veðurstofu Íslands 2014
Ársfundur Veðurstofu Íslands verður haldinn í húsnæði Veðurstofunnar Bústaðavegi 7-9, fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 8:15–10:30. Fundurinn er opinn öllum og skráning er hafin. Að loknu ávarpi umhverfisráðherra verða flutt fimm erindi. Fundinum verður streymt á vefinn.
Dagskrá:
- 8:15–9:00 Morgunverðarhlaðborð
- Ávarp. Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra
- Styrking innviða. Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands
- Loftslagsbreytingar á norðurhjara. Halldór Björnsson, verkefnisstjóri loftslagsrannsókna
- Veðurfarsbreytingar og væntingar. Trausti Jónsson, sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum
- Hættumat flóða. Ásdís Helgadóttir, sérfræðingur í tölulegri straumfræði og Emmanuel Pierre Pagneux, sérfræðingur í flóðarannsóknum
- Viðvaranir, miðlun og útgáfa. Theodór Freyr Hervarsson, framkvæmdastjóri eftirlits og spár
Sigrún Karlsdóttir náttúruvárstjóri stýrir fundi.
Ársskýrsla Veðurstofunnar (pdf 2,2 mb) mun liggja frammi ásamt útdrætti á ensku (pdf 1,7 mb).
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í tölvupósti á netfangið skraning@vedur.is eða í síma 522 6000.
Ljósmynd: Grýlukert í glugga, Guðrún Tryggvadóttir.
-
Ársfundur Veðurstofunnar
- Staðsetning
- Bústaðavegur 9
- Hefst
- Fimmtudagur 27. mars 2014 08:15
- Lýkur
- Fimmtudagur 27. mars 2014 10:30
Tengdir viðburðir
Birt:
26. mars 2014
Tilvitnun:
Veðurstofa Íslands „Ársfundur Veðurstofu Íslands 2014“, Náttúran.is: 26. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/26/arsfundur-vedurstofu-islands-2014/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.