Almanak SORPU 2012 komið út
Almanak SORPU fyrir 2012 er komið út. Almanakinu verður dreift á starfsstöðvar fyrirtækisins í kringum helgina og dreift ókeypis á stöðvunum á meðan birgðir endast.
Myndirnar sem prýða almanak SORPU árið 2012 eru verk nemenda í skólum og leikskólum sem eru þátttakendur í verkefninu Skólar á grænni grein. Verkefnið er alþjóðlegt umhverfismenntaverkefni sem Landvernd hefur umsjón með. Skólarnir eiga það sameiginlegt að leggja m.a. áherslu á þemað úrgang í sinni vinnu að umhverfismálum.
Birt:
6. desember 2011
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Almanak SORPU 2012 komið út“, Náttúran.is: 6. desember 2011 URL: http://nature.is/d/2011/12/06/almanak-sorpu-2012-komid-ut/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.