í gær birtist hér á Náttúrunni og víðar áskorun til hjálparsveita á landinu og snerist greinin fyrst og fremst um að koma af stað umræðu um einhverskonar ábyrgð söluaðila á umhverfisáhrifum af viðskiptum sínum. Þar sem að umræðan um umhverfisáhrif af flugeldadýrkun landsmanna virtist ekki ætla að hrökkva í gang hvorki hjá fréttamiðlum né opinberum aðilum þótti okkur nauðsynlegt að hrinda henni úr vör.

Málið snýst fyrst og fremst um það að allir taki ábyrgð á sínum gjörðum, þeir sem selja, þeir sem kaupa, þeir sem sjá um sorpið og ekki síst þeir sem eiga að sjá um umhverfismennt í þjóðfélaginu. Náttúran.is er einmitt einn af þeim aðilum sem að vilja sjá um það síðastnefnda, þ.e. upplýsa um umhverfismál. Hluti af upplýsingagjöf og skapandi umræðu byggir á því að velta upp möguleikum um úrlausnir eða betrumbætur. Þúsund tonn af eiturefnum og úrgangi kemur okkur öllum við og fyrst á dagskrá er að skoða stöðuna eins og hún er í dag.

Undanfarin ár hefur mikil aukning orðið í sölu flugelda en jafnframt hafa einkaaðilar komið inn á svið sem að björgunarsveitirnar töldu sitt áður. Þetta gremst þeim því að sala flugelda er aðaltekjulind sveitanna. Þó má segja að með aukinni samkeppni hafi aukning í sölu fylgt í kjölfarið svo það er ekki víst að minni peningar komi í kassann en áður.

Nú á tímum mikillar umhverfisvakningar um allan heim og á öllum sviðum neyslu og viðskipta þarf að taka til endurskoðunar þá mengun sem mennirnir bera ábyrgð á. Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki í framleiðslu, þjónustu og sölu verða því að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Ef allir taka ábyrgð gengur dæmið upp, annars ekki. Þetta eru staðreyndir málsins.

Umhverfisáhrif af sprengingum flugelda, hvort sem er hljóðmengun, loftmengun eða efnamengun er nokkuð sem að þarf að róta upp og rannsaka. Framleiðsla og flutningar valda einnig gífurlega neikvæðum áhrifum. Flugeldar eru flestir framleiddir í Kína, við aðstæður sem að ekki teljast til fyrirmyndar út frá heilsu- og siðgæði. Í grein á vef Neytendasamtakanna sem birtist fyrir ári síðan er m.a. talað um þetta atriði og að sjálfsögðu um mengunina og ábyrgð innflytjenda. Þar segir m.a.: Púður er auðvitað mikilvægt hráefni í flugeldaframleiðslu en til að flugeldar geti skartað fallegum litum eru notuð ýmis kemísk efni og þungmálmar. Til að fá grænan lit er notað baríum, rauður fæst með strontíum, gulur fæst með því að nota natríum og hinn vandasami blái litur krefst þess að notaður sé kopar sem er varasamur í meðförum.

Fyrirspurnir okkar til Sorpu bs. í Reykjavík og Flokkunar ehf. í Eyjafirði hafa leitt í ljós að í raun sé ekkert gert til að flokka rakettu- og sprengikökuruslið þannig að það fer allt til urðunar. Því sem skilað er á endurvinnslustöðvarnar fer beint í óendurvinnanlegt rusl en varað er við að fólk fylli almennar ruslatunnur af rakettum því það orskar vandamál við sorphirðuna. Frekar eigi að koma ruslinu beint á endurvinnslustöðvarnar.

Ef að við reiknum með að 50% af dótinu komist í ruslið, 30% hafi eyðst við bruna og 20% sé skilið eftir á viðavangi þýðir það að 500 tonn af sprengiefnaafgöngum séu urðuð hér á landi árlega. Við munum leita eftir upplýsingum um kostnað við urðun á 500 tonnum sem er sá fórnarkosntaður sem að sveitarfélögin sjálf þurfa að reiða fram vegna sprengigleiði landsmanna.

Að sögn Guðmundar Tryggva Ólafssonar framkvæmdastjóra Sorpstöðvar Suðurlands eru urðunarstaðir flestra sveitarfélaga þannig úr garði gerðir að þungmálmar og önnur skaðleg efni komast ekki í grunnvatn svo draga má þá ályktun að áhættuþátturinn liggi aðallega í því rusli sem liggur óhirt á víðavangi. Guðmundur Tryggvi segir ennfremur að ekki sé sannað að flugeldarusli (nema það ósprengda) skapi neina sérstaka umhverfislega áhættu sem slíkt og að í flestum tilfellum sé allt eitur fuðrað upp. Áhættuþátturinn liggur að hans mati aðallega í slysahættunni, sérstaklega fyrir börnin sem fyrir utan auðvitað að heillast af sprengingu flugeldanna á Gamlárskvöld, laðast þau að flugeldaruslinu dagana á eftir, eins og mþ á mykjuskán. Eins og flestir muna sjálfsagt eftir frá barnsárum sínum.

Svifryksmengun í Reykjavík fór á ný ársnótt 2006/2007 upp í 500 míkrógrömm á rúmmetra en heilsuverndarmörk liggja á bilinu 50 míkrógrömm á rúmmetra. Fólk almennt, ekki bara börn og asmtasjúklinar eru því í bráðri hætti við slík skilyrði. Á vef Umhverfisstofnunar er hægt að fylgjast með loftmengun.

Tölur um loftmengun liggja ekki fyrir en miðað við að þúsund tonn af sprengiefni fuðri upp á gamlárskvöldi og ný ársnótt ætti að vera hægt að fá tölur um koltvísýringslosun og losun annara skaðlegra efna. Sprurning hve mikið að losunarkvóta Íslands rúmist þar í?

Sjá viðmið Náttúrunnar fyrir þungmálma.
Sjá meira um endurvinnslu um jól og áramót.
Sjá á vef Sorpu hvað gera skal við ný ársruslið

Grafík: Flugeldar, brunnir flugeldar, sprengiterta og brunnin sprengiterta, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.
Birt:
27. desember 2007
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fllugeldar og umhverfið“, Náttúran.is: 27. desember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/12/27/fllugeldar-og-umhverfio/ [Skoðað:21. nóvember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 2. janúar 2008

Skilaboð: