Menningarnótt í Reykjavík 2014
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Laugardagur 23. ágúst 2014 11:00
- Lýkur
- Laugardagur 23. ágúst 2014 23:59
Tengt efni
Menningarnótt 2014
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkur og verður haldin í nítjánda sinn þann 23. ágúst. Menningarnótt er hátíð sem allir borgarbúar skapa og upplifa saman, úti á torgum og götum miðborgarinnar, í bakgörðum eða söfnum, fyrirtækjum og ekki síst í húsunum í bænum. Yfirskrift hátíðarinnar er „Gakktu í bæinn!“ sem vísar til þeirrar gömlu og góðu hefðar að bjóða fólk velkomið og gera vel við gesti.
Menningarnótt markar upphaf menningarárs borgarinnar þegar söfn, leikhús, menningarstofnanir og listamenn hefja sína haust- og vetrardagskrá. Markmið hátíðarinnar er að hvetja til menningarþátttöku með því að reiða fram fjölbreytt og ríkulegt framboð af hinum ýmsu viðburðum.
Með yfir 100.000 gesti og 400 viðburði má segja að Menningarnótt sé stærsta hátíð landsins. Dagskráin er þverskurður af menningar- og listflóru borgarinnar Allir viðburðir hátíðarinnar eru gestum að kostnaðarlausu og er þar með séð til þess að allir borgarbúar geti notið kraftmikils menningarlífs og góðrar samveru frá hádegi til miðnættis.
Mælt er með því að gestir komi gangandi, hjólandi eða í Strætó á Menningarnótt en umferð einkabíla er bönnuð um miðborgina. Það verður ókeyðis í Strætó. Á Hátiðarkorti Menningarnætur er auðvelt að átta sig á samgönguleiðum og kostum. Sjá Hátíðarkort Menningarnætur stærra í pdf-útgáfu.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Menningarnótt 2014“, Náttúran.is: 22. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/22/menningarnott-2014/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: