Yfirdráttardagurinn er í dag þ. 19. ágúst 2014, en nú er mannkynið búið að nota allar þær auðlindir sem jörðin nær að framleiða á þessu ári. Samtökin Global Footprint Network hafa þróað reiknilíkan til að áætla vistspor þjóða og reikna með því út fjölda jarða sem heimsbyggðin þarf til að standa undir neyslu sinni. Þannig tímasetja samtökin jafnframt yfirdráttardaginn á hverju ári. Í fréttayfirlýsingu frá samtökunum kemur fram að árið 1961 hafi mannkynið árlega notað um einn þriðja af auðlindum jarðar, en í dag búa um 86% heimsbyggðarinnar í löndum þar sem úttektir auðlinda eru hærri en innborganir. Frá og með deginum í dag er mannkynið því að ganga á varabirgðir jarðarinnar eða lifa á yfirdrætti. Yfirdráttardaginn bar upp degi fyrr í ár en í fyrra.
(Sjá tilkynningu Global Footprint Network í gær).
Yfirdráttardagurinn 2014
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Þriðjudagur 19. ágúst 2014 00:00
- Lýkur
- Þriðjudagur 19. ágúst 2014 23:59
Tengt efni
Yfirdráttardagurinn 2014
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Yfirdráttardagurinn 2014“, Náttúran.is: 19. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/21/yfirdrattardagurinn-2014/ [Skoðað:23. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. ágúst 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: