Sýningaropnun - Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi
- Staðsetning
- Kaupvangsstræti
- Hefst
- Laugardagur 16. ágúst 2014 15:00
- Lýkur
- Laugardagur 16. ágúst 2014 17:00
Tengt efni
Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi
Laugardaginn 16. ágúst, kl. 15 opnar í Ketilhúsinu sýning Urta Islandica ehf., Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi, sem samanstendur af myndlist, gjörningum, vöruhönnun, matvælaiðnaði og verslun. Tilgangurinn er að skoða samlegðaráhrif þessara ólíku sviða og þá orku sem losnar úr læðingi þegar skapandi greinar á borð við myndlist komast í tæri við fjármagn sem tengist viðskiptalífinu og öfugt.
Spjótum verður beint að ríkjandi stigveldishugsun innan listgreina og því viðhorfi að listirnar séu í eðli sínu hreinar, frjálsar og óháðar markaðnum. Á sama tíma verður þeirri hugmynd andmælt að listirnar séu byrði á samfélaginu, listamenn afætur og að leggja eigi niður opinbera styrki á þessu sviði. Viðburðurinn er hugsaður sem samræðugrundvöllur og vettvangur fyrir nýja hugmyndafræði þar sem siðfræði, samfélagsábyrgð og sjálfbærni gegna lykilhlutverki.
Sýningin stendur til 21. september og er opin alla daga nema mánudaga kl. 10-17 en kl. 12-17 frá og með 2. september. Sýningarstjóri er Þóra Þórisdóttir myndlistar- og athafnakona.
Birt:
Tilvitnun:
Listasafnið á Akureyri „Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi“, Náttúran.is: 14. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/14/urta-islandica-skapandi-greinar/ [Skoðað:20. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: