Plöntuskiptidagur í Laugargarði
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Sunnudagur 13. júlí 2014 15:00
- Lýkur
- Sunnudagur 13. júlí 2014 16:30
Tengt efni
Plöntuskiptidagur í Laugargarði
Næstkomandi sunnudag þ. 13. júlí kl. 15:00, verður Plöntuskiptidagur í Laugargarði.
Laugargarður er staðsettur í Laugardal við hliðina á Fjölskyldugörðunum og nálægt Langholtssskóla. Laugargarður er samfélagsrekinn hverfisgarður. Garðurinn tilraun til að búa til stað fyrir borgarbúa til að vinna saman að jákvæðum samfélagslegum breytingum. Við trúum því að með því að efla samvinnu og samskipti meðal borgarbúa munum við saman skapa fallegra mannlíf.
Með plönutskiptidegi viljum við skapa vettvang fyrir fólk til að skiptast á plöntum, fræjum og fróðleik. Hvernig væri að gefa plöntunni þinni áframhaldandi líf og leyfa öðrum að njóta afleggjara þess en um leið bæta við í plöntusafnið þitt. Dagskráin byrjar klukkan 14:00 þann 13. júní og stendur yfir í einn og hálfan tíma.
Fylgist með á facebook síðu okkar; facebook.com/laugargardur
Hér má fara á viðburðinn á facebook: https://www.facebook.com/events/594499577335720/?fref=ts
Birt:
Tilvitnun:
Auður Inez Sellgren „Plöntuskiptidagur í Laugargarði“, Náttúran.is: 9. júlí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/07/09/plonutskiptidagur-i-laugargardi/ [Skoðað:21. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 10. júlí 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: