Lífræni dagurinn - á Sólheimum
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Laugardagur 09. ágúst 2014 10:00
- Lýkur
- Laugardagur 09. ágúst 2014 18:00
Tengt efni
Umhverfisfræðsla á Sólheimum í sumar
Njótum náttúrunnar á Sólheimum!
29. júní, sunnudagur kl. 15:00 við Sesseljuhús - Jóga úti í náttúrunni
Unnur Arndísar jógakennari mun kenna gestum grunnstöður í jóga og mun leiða stutta hugleiðslu og tengja fólk þannig náttúrunni.
8. júlí, þriðjudagur kl. 17:00 við Grænu könnuna - Lífræn ræktun
Ágúst Friðmar Backmann kynnir lífræna ræktun, moltugerð og Aquaponics. Gengið um ræktunarstöð Sólheima, kíkt í ormaræktun, moltugerð og fiskeldi sem er nýtt til að rækta í þörunga sem er blandað í ræktunarmold.
13. júlí, sunnudagur kl. 15:00 í Sesseljuhúsi - Býflugnarækt
Erlendur Pálsson kynnir býflugnaræktun á Sólheimum og býflugnabú verður skoðað ef veður leyfir.
22. júlí, þriðjudagur kl. 17:00 í Sesseljuhúsi - Vistvænar byggingar
Árni Friðriksson arkitekt hefur teiknað mörg hús á Sólheimum og er Sesseljuhús þeirra þekktast en það er sýningarhús um sjálfbæra byggingu. Árni sýnir húsið og þá mörgu ólíku þætti sem þarf að hafa í huga við að koma upp sjálfbæru húsi.
29. júlí, þriðjudagur kl. 17:00 við Grænu könnuna - Tröllagarður
Á Sólheimum hafa íbúar sett saman merkilegan matjurtagarð með bæði lífrænum og lífefldum aðferðum og mun Valgeir kynna verkefnið og ræktunaraðferðir. Valgeir Fridolf Backman kynnir garðinn.
3. ágúst, sunnudagur kl. 15:00 við Sesseljuhús - Útileikur fyrir börn
Hólmfríður Frostadóttir hefur reynslu af barnastarfi og leikjanámskeiðum. Hún mun leiða börn á öllum aldri í skemmtilega útileiki.
9. ágúst, laugardagur - Lífræni dagurinn
Talið er að lífræn- og lífefld ræktun á norðurlöndum hafi fyrst farið fram á Sólheimum. Reist verður tjald við kaffihúsið og þar verða afurðir Sólheima til sölu, ásamt ýmsum lífrænt vottuðum vörum frá öðrum framleiðendum, innlendum og erlendum. Að auki bjóðum við þekktum matreiðslumeistara hingað til að bera fram lífrænar kræsingar í kaffihúsinu ásamt öðrum óvæntum uppákomum.
Ljósmynd: Sesseljuhús að Sólheimum, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Umhverfisfræðsla á Sólheimum í sumar“, Náttúran.is: 24. júní 2014 URL: http://nature.is/d/2014/06/24/umhverfisfraedsla-solheimum-i-sumar/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: