Málþing um stefnu um loftslagsbreytingar í Evrópusambandinu og hérlendis
- Staðsetning
- Oddi Oddi, Sturlugata 3
- Hefst
- Fimmtudagur 05. júní 2014 13:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 05. júní 2014 16:00
Tengt efni
Málþing um stefnu um loftslagsbreytingar í Evrópusambandinu og hérlendis
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Evrópustofa í samvinnu við Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands, standa fyrir opnum fundi um stefnu Evrópusambandsins um loftslagsbreytingar í Odda 101 fimmtudaginn 5. júní kl. 13-16.
Á málþinginu verður fjallað um stefnu Evrópusambandsins í loftslagsmálum og hvernig hún hefur áhrif á Íslandi í gegnum EES-samninginn. Er sambandið að standa sig nægilega vel í baráttunni gegn hlýnun jarðar? Á Íslandi er losun gróðurhúsalofttegunda á hvern íbúa með því mesta sem gerist í heiminum. Hvað eru íslensk stjórnvöld að gera til að draga úr þessari losun? Hvaða tækifæri eru til nýsköpunar í viðskiptageiranum á Íslandi? Þarf að breyta viðhorfum hérlendis?
Dagskrá:
- Opnunarávarp - Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
- Stefna Evrópusambandsins í loftslagsmálum og EES-samningurinn - Samuel Flückiger, sérfræðingur í umhverfismálum hjá EFTA
- Gagnrýnin umfjöllun um stefnu Evrópusambandsins í loftslags- og orkumálum - Wendel Trio, formaður Climate Action Network Europe
- Stefna og aðgerðir Íslands í loftslagsmálum - Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
- Tækifæri til nýsköpunar í viðskiptageiranum á Íslandi - Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins
- Gerum minna - hreinskilið viðhorf til höfuðorsaka nútímaloftslagsbreytinga - Finnur Guðmundarson Olguson, einn umsjónarmanna grugg.is, vefrits um umhverfismál
Samantekt: Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands
Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Málþingið fer fram á ensku. Allir velkomnir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Málþing um stefnu um loftslagsbreytingar í Evrópusambandinu og hérlendis“, Náttúran.is: 3. júní 2014 URL: http://nature.is/d/2014/06/03/malthing-um-stefnu-um-loftslagsbreytingar-i-evropu/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: