Nýsköpunartorg í HR
- Staðsetning
- Menntavegur 1
- Hefst
- Föstudagur 23. maí 2014 08:45
- Lýkur
- Laugardagur 24. maí 2014 17:00
Tengt efni
Nýsköpunartorg í Háskólanum í Reykjavík
Nýsköpunartorg verður haldið í Háskólanum í Reykjavík dagana 23. og 24 maí 2014. Um er að ræða fagráðstefnu um starfsumhverfi og uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja auk spennandi sýningar fyrir almenning þar sem fyrirtæki og stofnanir kynna árangur í nýsköpun.
Nýsköpunartorg er haldið í tengslum við 20 ára afmæli Samtaka iðnaðarins og 10 ára afmæli Tækniþróunarsjóðs. Af þessu tilefni munu nærri 60 fyrirtæki, sem hlotið hafa styrk út Tækniþróunarsjóði, kynna sig og starfsemi sína. Nánar um Nýsköpunartorg hér.
Föstudaginn 23. maí kl. 8:45-17:00 - Fagráðstefna
Fagráðstefnan hefst með sameiginlegri dagskrá í Sólinni en síðan verða haldnar málstofur í sex stofum háskólans. Annars vegar eru þrjár línur um uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja þar sem fyrirtækjum er skipt í deildir eftir þroskastigi og hins vegar málstofur um tengda stoðþjónustu s.s. vörumerki, einkaleyfi og staðla. Gestir ráðstefnunnar geta valið sér þá fyrirlestra sem mestan áhuga vekja.
Nánari upplýsingar og skráning á síðu Samtaka iðnaðarins.
Laugardaginn 24. maí kl. 11.00-17.00 - Spennandi Nýsköpunartorg fyrir alla fjölskylduna – allir velkomnir!
Öllum sem áhuga hafa á nýsköpun og tækni er boðið á Nýsköpunartorgið. Um 70 nýsköpunarfyrirtæki og stofnanir kynna vörur og þjónustu en að auki verða margvíslegar uppákomur fyrir alla fjölskylduna, m.a.
- Kynning fyrirtækja um tækifærin í tækni
- Pollapönk tekur lagið
- Kubbað með Mindstorm
- Spilað með Spilavinum
- Þrjú vinningslið GameCreator kynna nýja tölvuleiki
- Mælingar á ástandi húðarinnar í boði EGF húðvara
- Prófaðu að hjóla með heimsins léttasta hjólagaffli
- Hvernig verður rafmagn til?
- Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
- Ekta eða fake? - Falsaðar vörur til sýnis
- Taktu þátt í nýsköpun á orðavegg Ský þar sem leitað er eftir íslenskun á enskum tölvuhugtökum
- og fleira skemmtilegt...
Frítt er inn á Nýsköpunatorgið og finna allir eitthvað spennandi að skoða!
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Nýsköpunartorg í Háskólanum í Reykjavík“, Náttúran.is: 21. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/21/nyskopunartorg-i-haskolanum-i-reykjavik/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: