Háhýsi eða smáhýsi í vistvænu skipulagi
- Staðsetning
- Norræna húsið
- Hefst
- Fimmtudagur 08. maí 2014 15:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 08. maí 2014 16:30
Tengt efni
Háhýsi eða smáhýsi í vistvænu skipulagi
Fimmtudaginn 8. maí kl 15:00 stendur Vistbyggðarráð fyrir opnum fundi í Norræna húsinu sem ber yfirskriftina, „Háhýsi eða smáhýsi í vistvænu skipulagi“.
Á fundinum verða kynntar tillögur að vistvænum borgarhlutum, annars vegar Vogabyggð við Sundin og hins vegar nýju Hlíðarendahverfi í Vatnsmýrinni. Samspil bygginga og skipulags verður skoðað sérstaklega út frá almennum skilgreiningum um sjálfbæra byggð.
Í umræðunni um vistvænt skipulag er fókusinn oftar en ekki á það hversu há og þétt byggð þarf að vera til að ná fram markmiðum um þéttleika. Hérlendis er hins afar mikilvægt að taka tillit til staðbundinna einkenna eins og veðurfars og sólargangs og skoða vel hvaða hlutverki dagbirtan leikur í bæði hönnun bygginga og við skipulagningu byggðar.
Þá þarf að meta vel og vandlega hvort og hvar hentugt er að byggja há hús á Íslandi í því markmiði að þétta byggð. Velt verður upp spurningum eins og hvort það séu ef til vill aðrar lausnir sem henta betur til þess að þétta byggð hér á landi eins og fram kemur í þeim verkefnum sem kynnt verða. Þær áherslur sem þar eru settar fram um skipulag, staðsetningu og hönnun bygginga, vísa til hugmynda sem settar voru fram af mönnum eins og Guðmundi Hannessyni og Guðjóni Samúelssyni í upphafi síðustu aldar.
Dagskrá:
15:00-15:20 Hlíðarbyggð - vistvænn bæjarhluti - Jakob Líndal og Kristján Ásgeirsson, Alark arkitektar.
15:20-15:40 Dagbirta í skipulagi og byggðu umhverfi - Anna Sigríður Jóhannsdóttir, VA arkitektar.
15:40-16:00 Vistvæn randbyggð í Vogahverfi - Sigríður Magnúsdóttir, Teiknistofunni Tröð.
16:00-16:15 Norræn viðmið um vistvæna þróun þéttbýlis - Sigríður Björk Jónsdóttir, framkvæmdastýra Vistbyggðarráðs.
16:15-16:20 Kynning á ráðstefnu NORICA
16:20-16:30 Umræður/fyrirspurnir
Birt:
Tilvitnun:
Sigríður Björk Jónsdóttir, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Háhýsi eða smáhýsi í vistvænu skipulagi“, Náttúran.is: 5. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/05/hahysi-eda-smahysi-i-vistvaenu-skipulagi/ [Skoðað:24. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: