Veigar garðsins - námskeið í víngerð úr rabarbara og berjum
- Staðsetning
- Síðumúli 1
- Hefst
- Mánudagur 28. apríl 2014 18:00
- Lýkur
- Mánudagur 28. apríl 2014 21:00
Tengt efni
Veigar garðsins - námskeið í víngerð úr rabarbara og berjum
Mánudaginn 28. apríl kl. 18:00 verður Valborg Einarsdóttir með námskeið sem nefnist "Veigar garðsins"
Fjallað verður um sögu, ræktun og nýtingu rabarbara og víngerð úr rabarbara hérlendis frá lokum 19. aldar og til dagsins í dag. Einnig kennd víngerð úr berjum sem vaxa hérlendis, svo sem rifs- og sólberjum og krækiberjum að ógleymdu fíflavíni. Þá verður fjallað um heimagerða snafsa og líkjöra, sem auðvelt er að útbúa. Lífrænt eða vistvænt ræktað og heimagert úr garðinum, er og var hluti af sjálfbærni í íslensku samfélagi.
Þátttakendur fá helstu uppskriftir útprentaðar. Verð kr. 4,400,- fyrir félagsmenn í GÍ, en kr. 5,900,- fyrir aðra. Hjónagjald kr. 5,500,- fyrir félagsmenn. Skráning á gardurinn@gardurinn.is
Námskeiðið tekur u.þ.b. 3 1/2 klst. Léttar veitingar innifaldar í verði, boðið verður upp á brauð og ávexti um kvöldmatarleytið.
Námskeiðið verður haldið í fundarsal Garðyrkjufélags Íslands við Síðumúla 1, inngangur frá Ármúla.
Ljósmynd: Rabarbari, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Garðyrkjufélag Íslands „Veigar garðsins - námskeið í víngerð úr rabarbara og berjum“, Náttúran.is: 26. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/26/veigar-gardsins-namskeid-i-vingerd-ur-rabarbara-og/ [Skoðað:25. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: