Aðalfundur Umhverisvaktarinna við Hvalfjörð
- Staðsetning
- Garðar
- Hefst
- Sunnudagur 12. febrúar 2017 17:00
- Lýkur
- Sunnudagur 12. febrúar 2017 19:00
Tengt efni
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Tillaga að verkefnum næsta starfsárs
- Önnur mál
- Ávörp gesta
Kaffi og meðlæti verður til sölu í Garðakaffi. Allir áhugasamir um verndun náttúru og lífríkis eru hvattir til að mæta.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð „Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017“, Náttúran.is: 6. febrúar 2017 URL: http://nature.is/d/2017/02/06/adalfundur-umhverfisvaktarinnar-vid-hvalfjord-2017/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: