Morgunverðarfundur á degi umhverfisins
- Staðsetning
- Bændahöllinni við Hagatorg
- Hefst
- Föstudagur 25. apríl 2014 08:30
- Lýkur
- Föstudagur 25. apríl 2014 10:30
Tengt efni
Matarsóun í brennidepli á Degi umhverfisins
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið stendur fyrir morgunverðarfundi um matarsóun undir yfirskriftinni „Hættum að henda mat“, á Degi umhverfisins, 25. apríl næstkomandi.
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) áætlar að árlega fari 1,3 milljarðar tonna matvæla til spillis. Þetta er álíka mikill matur og framleiddur er árlega í Afríku sunnan Sahara eyðimerkurinnar. Á sama tíma fer ein af hverjum sjö manneskjum í heiminum svöng að sofa og yfir 20 þúsund börn deyja daglega úr næringarskorti.
Þessar staðreyndir endurspegla verulegt ójafnvægi þegar kemur að lífsstíl fólks sem aftur hefur stórfelld áhrif á umhverfið, m.a. vegna losunar gróðurhúsalofttegunda, land- og vatnsnotkunar og ýmissar mengunar sem hlýst af matarframleiðslu.
Á fundinum verður fjallað um umfang, ástæður og afleiðingar matarsóunar, hvað stýrir okkur sem neytendum þegar kemur að kaupum á mat, hvernig nýta má betur hráefni við matvælaframleiðslu, hvernig draga má úr matarsóun í mötuneytum og þá vitundarvakningu sem hefur orðið meðal almennings og stjórnvalda varðandi þessi efni.
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpar fundinn.
Morgunverðarfundurinn fer fram föstudaginn 25. apríl næstkomandi í Heklusal Hótel Sögu og hefst kl. 8:30 en áætlað er að honum verði lokið kl. 10:30. Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis en óskað er eftir því að fundargestir skrái sig fyrir kl. 12 á hádegi 23. apríl. Afgangs matur verður nýttur í Kaffistofu Samhjálpar.
Hættum að henda mat!
- Ávarp - Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
- Sóun matvæla – umfang, ástæður og afleiðingar - Dr. Daði Már Kristófersson, umhverfis- og auðlindahagfræðingur.
- Neytendasálfræði: Hvað stýrir ákvörðunum neytandans? - Dr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir, lektor í félagssálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands
- Að auka nýtingu í matvælaframleiðslu - Þóra Valsdóttir, verkefnastjóri hjá MATÍS
- Matarsóun stóreldhúsa má minnka - Heiða Björg Hilmisdóttir, deildarstjóri Eldhúss og matsala á Landspítala Íslands.
- Enga matarsóun! Vitundarvakning í fullum gangi - Dr. Rannveig Magnúsdóttir, starfsmaður Landverndar og verkefnisstjóri „Zero Waste“.
- Umræður
Fundarstjóri er Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Fundurinn er ókeypis og öllum opinn. Skráningarform er að finna á uar.is/matarsoun.
Ljósmynd: Matur í ruslagámi í Reykjavík.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Matarsóun í brennidepli á Degi umhverfisins“, Náttúran.is: 14. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/14/matarsoun-i-brennidepli-degi-umhverfisins/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 11. ágúst 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: