Fuglaskoðun við Elliðavatn
- Staðsetning
- Elliðavatn
- Hefst
- Mánudagur 23. maí 2016 17:30
- Lýkur
- Mánudagur 23. maí 2016 19:00
Tengt efni
Fuglaskoðun við Elliðavatn mánudaginn 23. maí
Skógræktarfélag Reykjavíkur og Fuglavernd standa fyrir fuglaskoðun í Heiðmörk mánudaginn 23. maí. Lagt verður af stað stundvíslega klukkan 17:30 frá Elliðavatnsbænum og genginn hringur í nágrenninu.
Skoða á ríkulegt fuglalíf við Elliðavatn og í skógarjaðrinum. Hallgrímur Gunnarsson mun leiða gönguna og mun hún taka um klukkutíma.
Allir eru velkomnir. Munið að taka sjónaukann og jafnvel fuglabókina með og vera vel klædd.
Birt:
Tilvitnun:
Skógræktarfélag Reykjavíkur „Fuglaskoðun við Elliðavatn mánudaginn 23. maí“, Náttúran.is: 20. maí 2016 URL: http://nature.is/d/2016/05/20/fuglaskodun-vid-ellidavatn-manudaginn-23-mai/ [Skoðað:27. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: