Vistvænt skipulag þéttbýlis - námskeið
- Staðsetning
- Grundarstígur 10
- Hefst
- Fimmtudagur 07. apríl 2016 13:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 07. apríl 2016 16:30
Tengt efni
Námskeið um vistvænt skipulag þéttbýlis
Þann 7. apríl næstkomandi standa Vistbyggðarráð og Skipulagsstofnun fyrir námskeiði um vistvænt skipulag. Námskeiðið fer fram í Hannesarholti við Grundarstíg 10 frá kl. 13:00-16:30
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem koma að gerð og framfylgd skipulags- ráðgjöfum og hönnuðum,
sérfræðingum hjá sveitarfélögum og stofnunum.
Það er einnig kjörið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum sem vilja kynna sér umhverfisáherslur í skipulagsgerð.
Að loknu námskeiðinu eiga þátttakendur að hafa öðlast yfirsýn yfir;
- helsti þætti sem áhrif hafa á visthæfi skipulags, bæði í nýrri byggð og við endurskoðun eldri byggðar,
- hvernig beita má ólíkum aðferðum til að vinna að vistvænu skipulagi,
- Breeam Communities vistvottunarkerfið fyrir skipulag,
- umhverfismat skipulagsáætlana og helstu aðferðir við það,
- Norræna vegvísinn fyrir vistvæna þróun þéttbýlis.
13:00 Sigríður Björk Jónsdóttir, framkvæmdastýra Vistbyggðarráðs
- Vistvænt skipulag, helstu þættir sem hafa áhrif á visthæfi byggðar
- Norrænn vegvísir fyrir vistvæna þróun þéttbýlis
13:30 Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar
- Vistvænt skipulag í lagaumgjörð og stefnumörkun stjórnvalda
- Umhverfismat áætlana, hvernig beita umhverfismati til að auka visthæfi byggðar
14:10 Björn Axelsson, skipulagsfulltrúi Reykjavíkur eða NN frá Reykjavíkurborg
- Mat á visthæfi byggðar og skipulags. Aðferð við forsendugreiningu og áhrifamat við gerð hverfisskipulags í Reykjavík
14:50 Kaffihlé og hópavinna
Þátttakendur fara í hléinu saman yfir dæmi um skipulagsverkefni og ræða með tilliti til visthæfi.
15:20 Ólöf Kristjánsdóttir, samgönguverkfræðinur, Mannviti
- Vistvottunarkerfið Breeam Communities.
- Dæmi um Breeam vottun skipulags í Urriðaholti.
16:20 Sigríður Björk Jónsdóttir
- Samantekt
Verð: 20.000 kr./15.000 fyrir aðildarfélög VBR (lágmarksfjöldi þátttakanda 15).
Skráning: HÉR
Greiða þarf námskeiðsgjald fyrir 1.apríl. Námskeiðsgjaldið greiðist beint inn á reikning: 701-26-1550, kt:460510-1550. Vinsamlegst sendið staðfestingu á netfangið: vbr@vbr.is
Námskeiðsgögn:
- Vistvænt skipulag þéttbýlis. Bæklingur gefinn út af Vistbyggðarráði í samvinnu við Skipulagstofnun, HR og Arkís 2014. Vefútgáfa.
- Breeam Communities 2012. Handbók
- Norrænn vegvísir fyrir vistvæna þróun þéttbýlis.
Birt:
Tilvitnun:
Sigríður Björg Jónsdóttir, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Námskeið um vistvænt skipulag þéttbýlis“, Náttúran.is: 15. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2016/03/15/namskeid-um-vistvaent-skipulag-thettbylis/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: