Málþing um nýjar reglur um velferð gæludýra
- Staðsetning
- Skúlagata 4
- Hefst
- Fimmtudagur 03. mars 2016 13:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 03. mars 2016 16:00
- Lýsing
Skráning til 1. mars.
Tengt efni
Málþing um nýjar reglur um velferð gæludýra
Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opið málþing um velferð gæludýra fimmtudaginn, 3. mars kl. 13:00 – 16:00 í fyrirlestrarsal ráðuneytisins að Skúlagötu 4 (1.h.) í Reykjavík. Á málþinginu gefst gæludýraeigendum og öðrum áhugasömum kostur á að fræðast um kröfur og helstu nýmæli nýrrar reglugerðar um velferð gæludýra, með gagnvirkum umræðum í lokin.
Með útgáfu reglugerðarinnar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lokið útfærslu á nýjum dýravelferðarlögum fyrir allar helstu dýrategundir sem löggjöfin nær yfir. Matvælastofnun fer með framkvæmd laganna og reglugerða um velferð dýra og hefur eftirlit með að ákvæðum þeirra sé fylgt.
Dagskrá
13:00 – 13:10 Ný reglugerð um velferð gæludýra - Halldór Runólfsson, fundarstjóri
13:10 – 13:20 Af hverju nýjar reglur og hver fylgist með? - Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir
13:20 – 14:30 Meðferð, umhirða og aðbúnaður gæludýra - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
14:30 – 14:45 Hlé
14:45 – 15:15 Tilkynningarskylt dýrahald – hvað er það? - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
15:15 – 15:55 Umræður
15:55 – 16:00 Samantekt og lokaorð - Halldór Runólfsson, fundarstjóri
Skráning
Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir! Skráning fer fram á netfanginu mast@mast.is. Vinsamlega takið fram fullt nafn, fyrirtæki/samtök og netfang þátttakanda við skráningu. Skráningarfrestur er til 1. mars nk.
Nánari upplýsingar um reglugerðina er að finna hér:
http://www.mast.is/frettaflokkar/frett/2016/02/24/Malthing-Nyjar-reglur-um-velferd-gaeludyra/.
Birt:
Tilvitnun:
Matvælastofnun - MAST „Málþing um nýjar reglur um velferð gæludýra“, Náttúran.is: 28. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/02/28/malthing-um-nyjar-reglur-um-velferd-gaeludyra/ [Skoðað:16. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: