Frestur til að skila inn umsögnum um breytingar á starfsreglum Rammaáætlunar
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Miðvikudagur 03. febrúar 2016 00:00
- Lýkur
- Mánudagur 22. febrúar 2016 00:00
Tengt efni
Drög að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaráætlunar til umsagnar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, í samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, óskar eftir umsögnum um drög að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaráætlunar.
Starfsreglur verkefnisstjórnar voru undirritaðar af ráðherra 22. maí 2015 og birtust í Stjórnartíðindum 22. júní 2015. Í kjölfarið hafa ráðuneytinu borist ábendingar um tiltekin atriði í starfsreglum sem þyrfti að skýra frekar. Ráðuneytið hefur nú brugðist við þeim ábendingum með því að leggja til breytingar á ákveðnum atriðum starfsreglanna í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
Í tillögunum eru meðal annars lagðar til breytingar á ákvæðum starfsreglna verkefnisstjórnar er snúa að endurmati virkjunarkosta sem þegar hafa verið flokkaðir í verndarflokk eða nýtingarflokk í fyrri áætlunum, nánari ákvæði um hæfi fulltrúa í verkefnisstjórn og faghópum, ákvæði um hlutverk verkefnisstjórnar auk annarra atriða sem gerðar hafa verið athugasemdir við.
Umsögnum um breytingatillögurnar skal skilað fyrir 22. febrúar nk.(ath. var áður 12. febr. en fresturinn hefur verið framlengdur) á netfangið postur@uar.is eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
Drög að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaráætlunar (pdf skjal).
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Drög að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaráætlunar til umsagnar“, Náttúran.is: 3. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/02/03/drog-ad-breytingum-starfsreglum-verkefnisstjornar-/ [Skoðað:23. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 12. febrúar 2016


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: